Kaffistofa Samhjálpar hefur verið mjög til umfjöllunar síðastliðið ár. Flytja þurfti hana úr Borgartúni í október fyrir ári og húsnæði hafði fundist við Grensásveg en þangað fluttist kaffistofan aldrei. Eftir að málið hafði þvælst í kerfinu um langa hríð og byggingarleyfi hafði verið veitt kom fram opinber andstaða frá hluta íbúa og fyrirtækja í nágrenninu.
Þá fór fram grenndarkynning og í júní fór málið fyrir Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, sem í júní felldi úr gildi leyfi Reykjavíkurborgar fyrir breytingunum. Nefndin taldi að borgin hefði átt að fara í deiliskipulagsferli vegna mögulegra grenndaráhrifa áður en byggingarleyfið var samþykkt.
Niðurstaðan þýddi í reynd að Samhjálp gat ekki hafið starfsemi á Grensásvegi á þeim forsendum sem fyrir lágu og fyrirhuguð opnun féll niður. Reykjavíkurborg hefur síðan reynt að finna samtökunum húsnæði fyrir kaffistofuna en án árangurs og nú er búið að segja öllu starfsfólkinu upp.
Forsvarsmenn Samhjálpar telja að samtökin hafi tapað um 70 milljónum króna á málsmeðferðinni, húsnæðið við Grensásveg var endurnýjað með ærnum tilkostnaði og enn greiða samtökin húsaleigu þó að engin sé starfsemin. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Samhjálpar segir leiguna vera um 1.250.000 krónur á mánuði.
Guðrún segir það reynslu sína að allir séu með Samhjálp í liði, en fólk vilji samt ekki hafa starfsemi Kaffistofunnar nærri sér og sínum. Sem stendur er hún í kjallara Fíladelfíukirkjunnar, enda liggja trúarlegar rætur Samhjálpar í hvítasunnuhreyfingunni og Fíladelfía hefur frá upphafi verið nátengd starfseminni.