Samþykkt var á fundi bæjarráðs Garðabæjar í gær að bæta 383 milljóna króna útgjöldum við fjárhagsáætlun þessa árs. Þetta á að hluta til að fjármagna með lækkun rekstrarafgangs en þó var sveitarfélagið rekið með halla á fyrstu 6 mánuðum ársins.Langstærstur hluti þessarar útgjaldaukningar rennur til leikskóla í bænum, 365 milljónir króna. Það er ekki skýrt nánar í fundargerð af hverju þessi kostnaðarauki stafar en 203 milljónir fara til leikskóla sem reknir eru af bænum en 162 milljónir til sjálfstætt starfandi leikskóla.
Útgjöld Garðabæjar hækka og afgangur minnkar