Hálka tók á móti íbúum höfuðborgarsvæðisins eftir næturfrost á suðvesturhorninu í nótt. Þurftu margir að grípa til sköfunnar áður en haldið var af stað út í umferðina sem gekk hægt í morgun að sögn Árna Friðleifssonar yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Morguninn hafi þó verið rólegur og þegar fréttastofa náði tali af Árna á ellefta tímanum hafði engin tilkynning borist um umferðaróhöpp.
Meira að gera en á sama tíma í fyrra
Hins vegar var nóg að gera á dekkjaverkstæðum og morguninn sá stærsti í dekkjaskiptum á þessu hausti að sögn Reynis Stefánssonar framkvæmdastjóra Dekkjahallarinnar.
„Það hefur verið mikið að gera og í raun og veru bara mikið álag. Við gerum allt sem við getum til að taka hratt og vel á móti viðskiptavinunum en þegar veturinn bankar upp þá vilja náttúrulega allir koma á sama tíma,“ sagði Reynir í hádegisfréttum Bylgjunnar.
Ökumenn séu bæði að setja ónegld og negld vetrardekk undir bílana, þau negldu henti betur við erfiðar aðstæður utanbæjar á ísilögðum vegum.
Þá virðist sem fólk sé betur meðvitað um vetrarkomuna nú en áður.
„Ég held það sé ekki spurning, á sama tíma í fyrra þá er búið að vera miklu meira að gera heldur en til að mynda á sama tíma fyrir ári síðan. Þannig að það er bara mjög gott að fólk sé að kveikja aðeins á hlutunum og bregðast hraðar við,“ bætir Reynir við.
Varað við hálku víða um land
Á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is, er varað við hálku eða hálkublettum á Reykjanesbraut og Mosfellsheiði en Hellisheiði er greiðfær.
Hálkublettir eru norðan af Borgarnesi og á Holtavörðuheiði og hálka á hringveginum um Mývatns- og Möðrudalsöræfi sem og á flestum vegum á Vestfjörðum en síður á Austurlandi.
Þá eru hálkublettir á hringveginum um Síðu, Eldhraun og Mýrdalssand og víða á Suðurlandi.