Yfirskattanefnd hefur staðfest úrskurð ríkisskattstjóra um að greiðslur fyrirtækis til eiganda þess skuli færðar honum til tekna en ekki skilgreinast sem lán, sem að í þessu tilfelli hafi þar að auki verið óheimilt samkvæmt lögum. Sagði maðurinn þessar greiðslur tilkomnar vegna úttekta á reiðufé í þeim tilgangi að greiða út vinninga í spilakössum sem fyrirtækið ræki og einnig til að viðskiptavinir gætu spilað í kössununum, en þær skýringar þóttu nefndinni vera ótrúverðugar.
Sagður hafa dulið arðgreiðslur - Trúðu því ekki að hann væri að greiða út vinninga