Hrókeringar í nefndastörfum á vegum Viðreisnar héldu áfram í morgun þegar skipt var um fyrsta varaformann í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis.
Jón Gnarr hefur verið fyrsti varaformaður. Hann sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í síðustu viku. Hann situr áfram í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þrátt fyrir þá breytingu en sá í morgun eftir varaformennskunni. Við henni tekur Eiríkur Björn Björgvinsson, þingmaður Viðreisnar.
Þetta er ekki fyrsta tilfærslan í nefndum þingsins þessa vikuna. Í gær var tilkynnt að Sandra Sigurðardóttir, þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi, hefði tekið sæti Ingvars Þóroddssonar, oddvita flokksins í Norðausturkjördæmi, í fjárlaganefnd. Ingvar tók sæti Söndru í velferðarnefnd í staðinn.
Þá var einnig greint frá því að Sandra tæki sæti Jóns sem varamaður í utanríkismálanefnd og í Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautið.