Á vef Veðurstofunnar segir að í nótt nálgist svo skilabakki úr vestri, en áfram ríki sunnanátt í fyrramálið. Þá verður víða allhvöss eða hvöss og talsverð rigning, en léttir til á norðaustanverðu landinu.
„Þegar skilin fara hjá snýst í minnkandi suðvestanátt með lítilsháttar skúrum, fyrst vestast á landinu þegar líður að hádegi. Svalara loft fylgir í kjölfarið og kólnar því smám saman.
Á miðvikudag er svo útlit fyrir hæglætis sunnanátt með dálitlum skúrum á víð og dreif, en léttskýjuðu veðri á Norður- og Austurlandi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag: Suðvestan 3-10 m/s. Dálitlar skúrir á víð og dreif, en léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Hiti 2 til 8 stig að deginum, hlýjast sunnanlands.
Á fimmtudag: Sunnan 5-13 m/s og rigning með köflum, en bjartviðri um landið norðaustanvert. Hiti víða 5 til 10 stig.
Á föstudag: Suðvestlæg eða breytileg átt og rigning, en úrkomulítið á austanverðu landinu. Hiti 3 til 9 stig.
Á laugardag: Sunnan- og suðvestanátt með skúrum, en að mestu bjart norðaustan- og austantil. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag: Útlit fyrir sunnanátt með rigningu, en úrkomulítið norðaustanlands.
Á mánudag: Líklega suðvestanátt og úrkomulítið, en rigningu austantil framan af degi.