Hinsegin dagar voru settir í dag fyrir utan Iðnó í miðborg Reykjavíkur sem er miðstöð Hinsegin daga. Fjölbreytt dagskrá verður alla vikuna sem nær hápunkti á gleðigöngunni á laugardaginn.
Helga Haraldsdóttir formaður Hinsegin daga setti hátíðina formlega. Guðjón Þorgils Kristjánsson flutti lagið Framávið, sem er lag Hinsegin daga 2026, á meðan framfarafáninn var dreginn á húni.
Fleiri sem taka þátt í göngunni í ár
Yfirskrift Hinsegin daga í ár er Sameinumst undir regnboganum. „Sameinumst undir regnboganum er boð um að koma saman, standa saman og áminning um að það er pláss fyrir okkur öll undir regnboganum,“ segir Helga.
Spurð hvort öryggisgæsla verði hert á gleðigöngunni í ár í ljósi árásarinnar sem var gerð á gleðigöngu í Berlín í júlí segir Helga skipuleggjendur eiga í góðu sambandi við lögregluna. Engin breyting sé þar á milli ára.
„En mér finnst það til marks um hvar samfélagið okkar er statt með þessar hræðilegu fregnir, að í ár erum við með 50 skráða hópa í gleðigöngunni miðað við 38 í fyrra. Þannig að svona virðist fólk taka á þessu. Við tökum okkur saman, stöndum keik og göngum saman í gleði og stolti núna á laugardaginn,“ segir hún.
Borgin ekki hætt að sinna mannréttinda- og hinseginmálum
Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar flutti ávarp við setninguna. Hún sagði íslenskt samfélag ganga upp vegna þess að fólk hafi áttað sig á því að það væri betra að standa saman og virða hvert annað.
„Samstaðan er það sem heldur Íslandi saman,“ sagði Björg í ræðu sinni.
Þá kom hún inn á skipulagsbreytingar á skrifstofu borgarinnar fyrr í sumar. Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar var lögð niður í júní.
„Lyklaborðsriddarar voru ekki lengi að setja þessar breytingar í sitt eigið ímyndaða samhengi og fögnuðu ákaft að nýr meirihluti ætlaði loksins að hætta með þessi „hinsegin mál og mannréttindadót“,“ sagði Björg.
Hún sagði borgina ekki vera að hætta verkefnum sem tengjast hinsegin málum og mannréttindum með breytingunum heldur hafi ákveðin verkefni verið færð til.
„En höfum það alveg á hreinu að meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur stendur með hinsegin samfélaginu og stendur með mannréttindum. Reykjavíkurborg er og verður áfram mannréttindaborg þar sem við fögnum fjölbreytileikanum,“ sagði Björg.