Við þurfum að endurheimta tengsl við náttúruna
⚠️ Eldri en 6 mánuðir

Við þurfum að endurheimta tengsl við náttúruna

Við þurfum að endurheimta tengsl við náttúruna

Við þurfum að endurheimta tengsl við náttúruna

Í umræðu um loftslagsmál er oft talað eins og jörðin sé veik og við þurfum að bjarga henni. Eins og mannkynið standi utan við náttúruna og hafi nú loksins tekið eftir því að hún sé í hættu. Þessi frásögn er skiljanleg en líka villandi. Jörðin er 4,54 milljarða ára gömul og verður lífvænleg langt fram yfir okkar tíma. Það sem er í raun í hættu er sambandið okkar við hana, og þar með skilyrðin fyrir okkar eigin lífi.

Aðskilnaður okkar og náttúrunnar

Við höfum lengi litið á náttúruna sem auðlind: eitthvað sem er „þarna úti“ til ráðstöfunar og stjórnunar. Í því sjónarhorni er manneskjan gerandi og náttúran bakgrunnur. En þessi aðgreining er ekki náttúrulögmál heldur menningarleg hugmynd, tiltölulega ný í sögulegu samhengi.

Í flestum samfélögum mannkynssögunnar var slíkur aðskilnaður óhugsandi. Fólk skildi sig sem hluta af vistkerfinu, ekki herrar þess. Árstíðir, jarðvegur, dýr og veður voru ekki utanaðkomandi fyrirbæri heldur skilyrði lífsins sjálfs. Hér á landi var lengi sjálfsagt að börn færu í sveit yfir sumarið. Þar kynntust þau ekki náttúrunni sem hugtaki heldur sem lifandi veruleika, með líkamlegri vinnu, þreytu og veðrabrigðum. Þau lærðu, oft án orða, að lífsgæði byggjast á samspili við umhverfið, með mold undir nöglum, kulda í kinnum og vind sem beit í andlitið.

Þessi tengsl hafa þó ekki horfið með öllu. Atvinnugreinar á borð við landbúnað og fiskveiðar eru enn augljóslega háðar veðri, árstíðum, jarðvegi, hafstraumum og lífríki. En fyrir stóran hluta samfélagsins er þessi tenging orðin fjarlæg. Við göngum um matvörubúðir þar sem ávextir og grænmeti eru til staðar allt árið, án þess að þekkja uppruna þeirra eða jarðveginn sem nærði þau. Náttúran birtist ekki í daglegu lífi margra fyrr en hún gerir vart við sig með skorti, öfgaveðri eða röskun. Þessi fjarlægð er ekki aðeins efnisleg heldur einnig tilvistarleg. Hún hefur áhrif á það hvernig við upplifum öryggi, merkingu og framtíð.

Loftslagskvíði sem sorg yfir rofnum tengslum

Loftslagskvíði er ekki einfaldlega ótti við það sem koma skal. Rannsóknir og frásagnir ungs fólks benda til þess að hann sé djúp tilvistarleg sorg. Sorg yfir rofnu sambandi við heim sem áður virtist stöðugur og sjálfsagður. Í stað þess að spyrja einungis hvernig við „leysum“ loftslagsvandann þurfum við því líka að spyrja hvað fór úrskeiðis í sambandi okkar við umhverfið.

Þegar loftslagsaðgerðir eru settar fram sem fórn, svo sem minni neysla, hærri skattar og breyttur lífsstíll, missum við sjónar á dýpri vídd. Þá virðist sem við séum að missa eitthvað frekar en að endurheimta eitthvað sem skiptir máli. Reynslan bendir þó oft til hins gagnstæða: þegar tengsl við náttúru, samfélag og takta lífsins styrkjast aukast lífsgæði. Munurinn liggur ekki í því hvort breytingar eru nauðsynlegar heldur í því hvernig við skiljum þær.

Þurfum að endurheimta tengsl

Að endurheimta þessi tengsl snýst ekki um að hverfa aftur til rómantísks fortíðarheims heldur um að viðurkenna að við lifum í stöðugu samspili við umhverfið. Þó að við tökum ekki alltaf eftir því er líf okkar fléttað saman við líf annarra – manna, dýra og vistkerfa. Þegar sú viðurkenning fær að móta ákvarðanir verður ábyrgðin ekki byrði heldur eðlileg afleiðing þess að við tilheyrum samhengi sem heldur okkur á lífi.

Tæknilausnir einar og sér duga því ekki. Þær geta dregið úr skaða og minnkað losun en þær laga ekki það samband sem hefur rofnað. Tengsl lagast með athygli, virðingu og umhyggju. Það krefst menningarlegrar breytingar: að við hættum að tala um náttúruna sem ytri auðlind og viðurkennum hana sem heim sem við búum í, erum háð og berum ábyrgð gagnvart.

Von sem sjálfsmynd

Von í loftslagsmálum felst fyrst og fremst í því að við skilgreinum okkur ekki sem bjargvætti plánetunnar heldur sem hluta af henni, verur sem eru háðar náttúrunni, ekki yfir hana hafnar. Slík sjálfsmynd breytir ábyrgð úr ytri kröfu í eðlilega afleiðingu þess að tilheyra samhengi sem heldur okkur á lífi.

Von byggir ekki á fullvissu um að allt fari vel heldur á vilja til að axla ábyrgð af heiðarleika og umhyggju. Hún krefst þess ekki að við séum gallalaus heldur að við séum til staðar, með athygli og virðingu, í heimi sem við öndum að okkur og sem nærir okkur dag hvern.

Kannski snýst þetta ekki um að bjarga jörðinni heldur um að muna að hún er heimili okkar.

Greinarhöfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Ísland leggi sitt af mörkum til að takast á við loftslagsvandann.

#endurheimta #náttúruna #tengsl


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/26480/loftslagsmal-vid-thurfum-ad-endurheimta-tengsl-vid-natturuna/

📰 Aðrar fréttir

Taika Waititi greinir frá sérstakri reglu í hjónabandinu sem hann og Rita Ora reyna að fylgja
📅 25.10.2026 👁️ 0
Taika Waititi greinir frá sérstakri reglu í hjónabandinu sem hann og Rita Ora reyna að fylgja
Leikarinn og leikstjórinn Taika Waititi hefur opinberað eina reglu sem hann og eiginkona hans, söngkonan Rita Ora fylgja í sambandi sínu, í þeim tilga...
Segir að endurskoða þurfi breytingar á Loftbrú
📅 25.10.2026 👁️ 1
Segir að endurskoða þurfi breytingar á Loftbrú
Þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi telur að innviðaráðherra þurfi að endurskoða boðaðar breytingar á niðurgreiðslu vegna Loftbrúar. Sjö þú...
Pawel Bartoszek: Andstaða við bókun 35 er einhvers konar hugmynd um fullveldið
📅 25.10.2026 👁️ 2
Pawel Bartoszek: Andstaða við bókun 35 er einhvers konar hugmynd um fullveldið
Ef Alþingi samþykkir bókun 35 á næstu vikum er mál ESA gegn okkur orðið ansi veikt. Pawel Bartoszek, formaður þingflokks Viðreisnar og fyrrverandi for...
Um­deildur sýknudómur þegar haft al­var­legar af­leiðingar - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Um­deildur sýknudómur þegar haft al­var­legar af­leiðingar - Vísir
Brasilíumenn ganga að kjörborðinu í dag í seinni umferð forsetakosninga. Val kjósenda stendur á milli sitjandi forseta og frambjóðanda hægrimanna sem ...
Málverkið af danska kónginum
📅 25.10.2026 👁️ 1
Málverkið af danska kónginum
Málverkið af danska kónginum Í Frið­riks­borg­ar­höll­inni á Norður – Sjálandi má sjá mál­verk af dönskum þjóð­höfð­ingjum, langt aftur í aldir. Fyrst...
Ísraelsher hrekur íbúa Hebron frá heimilum sínum
📅 25.10.2026 👁️ 1
Ísraelsher hrekur íbúa Hebron frá heimilum sínum
Ísraelsher ætlar að loka öllum landamærastöðvum á Vesturbakkanum á þriðjudag þegar kosningar eru í Ísrael.Tvö þúsund Palestínumenn voru hraktir frá he...
Skiljan­lega skiptar skoðanir á stærstu kerfis­breytingu í ára­tug - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Skiljan­lega skiptar skoðanir á stærstu kerfis­breytingu í ára­tug - Vísir
Ráðherrann kynnti fyrir nokkrum vikum nýjar breytingar á umdæmum lögreglunnar þar sem fækka á þeim úr sjö í þrjú. Áformin hafa sætt töluverðri gagnrýn...
Lögregla kölluð til vegna líkamsárásar í Skeifunni
📅 25.10.2026 👁️ 1
Lögregla kölluð til vegna líkamsárásar í Skeifunni
Lögregla var kölluð að Hagkaup í Skeifunni um sjöleytið í gærkvöld. 18 ára karlmaður óskaði eftir aðstoð eftir að hópur manna réðst á hann með barsmíð...
Vetrartími í Evrópu
📅 25.10.2026 👁️ 1
Vetrartími í Evrópu
Vetrartími tók gildi í Evrópu í nótt og klukkan var þá færð klukkustund aftur.Tímamunurinn milli Íslands og vesturhluta Evrópu og Skandinavíu er nú ei...
Orðið á götunni: Pilsfaldakapítalistar vilja maka krókinn – á okkar kostnað!
📅 25.10.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Pilsfaldakapítalistar vilja maka krókinn – á okkar kostnað!
Orðið á götunni er að vert sé að staldra við og skoða vandlega þau áform sem nú eru uppi um rekstur Litla spítalans, sem boðað er að hefji senn starfs...
Fluttur á bráða­mót­töku eftir líkams­á­rás í Skeifunni - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Fluttur á bráða­mót­töku eftir líkams­á­rás í Skeifunni - Vísir
Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að tilkynning barst um líkamsárás í hverfi 108 og sé málið í rannsókn. Um hóp manna hafi verið a...
Manstu þegar 112 var nýtt neyðarnúmer?
📅 25.10.2026 👁️ 2
Manstu þegar 112 var nýtt neyðarnúmer?
Um þetta leyti á árinu 1995 var vinna við innleiðingu á einu neyðarsímanúmeri fyrir allt landið langt á veg komið. Fram að því hringdi fólk í símanúme...
„Ég var al­veg skelfingu lostinn“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
„Ég var al­veg skelfingu lostinn“ - Vísir
Tolli var vel upp lagður þegar hann hitti blaðamann, nýkominn úr jóga þar sem hann segist vera nýgræðingur. Sem kemur á óvart, eins mikið og hann hefu...
Föstudagar fortíðar: „Kannski er ágætt að lenda í kulnun þegar maður er 14 ára, þá lendir maður ekkert aftur í því“
📅 25.10.2026 👁️ 1
Föstudagar fortíðar: „Kannski er ágætt að lenda í kulnun þegar maður er 14 ára, þá lendir maður ekkert aftur í því“
Ida Karolina Harris tók þátt í loftslagsverkföllunum á Austurvelli í sjö ár, lengur en flestir. Hún segir að það hafi verið margt jákvætt við þátttöku...
Bar­áttan um Brasilíu - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Bar­áttan um Brasilíu - Vísir
Flávio Bolsonaro hafði betur gegn hinum áttræða Lula í fyrri umferð forsetakosninganna þann 4. október síðastliðinn. Hann náði þó ekki hreinum meirihl...
Neglur losnuðu hjá nær 40% notenda þyngdarstjórnunarlyfja
📅 25.10.2026 👁️ 1
Neglur losnuðu hjá nær 40% notenda þyngdarstjórnunarlyfja
Þyngdarstjórnunarlyf geta aukið líkur á að neglur losni frá naglabeði samkvæmt nýrri rannsókn. Nær 40% þátttakenda sem notuðu GLP-1 þyngdarstjórnunarl...
Lægir víðast hvar á morgun
📅 25.10.2026 👁️ 2
Lægir víðast hvar á morgun
Búast má við norðan kalda eða strekkingi í dag en austan Öræfa má reikna meðallhvössum eða hvössum vindi fram að hádegi samkvæmt Veðurstofu Íslands.Úr...
Hörður Arnars­son og náttúru- og inn­viða­gjald á Sprengi­sandi - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Hörður Arnars­son og náttúru- og inn­viða­gjald á Sprengi­sandi - Vísir
Fyrsti gestur Páls verður Dr. Hafsteinn Dan Kristjánsson, lagaprófessor. Hann hefur meðal annars kennt Evrópu- og stjórnsýslurétt við Oxford-háskóla o...
Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst - Vísir
Þetta segir Hrund Ottósdóttir, 47 ára Grindvíkingur, en í desember verða þrjátíu ár liðin frá því að tvíburabróðir hennar, Hafliði, féll fyrir eigin h...
14,600 people are waiting for home care support in the Canary Islands
📅 25.10.2026 👁️ 2
14,600 people are waiting for home care support in the Canary Islands
Thousands of people who need help with everyday activities are still waiting for support in the Canary Islands, despite a substantial reduction in del...
Stigmögnun skuggastríðsins
📅 25.10.2026 👁️ 3
Stigmögnun skuggastríðsins
Orðin fjölþáttaógnir, fjölþáttaárásir og fjölþáttastríð hafa heyrst töluvert í fréttum síðustu mánuði og ekki að ástæðulausu því samhliða innrásarstrí...
Sleit sam­bandi við föður sinn í ljósi á­sakana - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Sleit sam­bandi við föður sinn í ljósi á­sakana - Vísir
The Sun og BBC greina frá. BBC hefur eftir heimildarmönnum sínum sem nákomnir væru Meghan að hún hefði tjáð föður sínum að samskiptum þeirra á milli v...
Musk says SpaceX restricted Ukraine's Starlink connection as service restored
📅 25.10.2026 👁️ 2
Musk says SpaceX restricted Ukraine's Starlink connection as service restored
The tech billionaire accuses Ukraine of violating its terms of service by using the network for military activity.
Dýra steikin á mat­seðlinum er ekki þarna til að seljast - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Dýra steikin á mat­seðlinum er ekki þarna til að seljast - Vísir
Því það eru ótrúlegustu atriði sem eru að hafa áhrif á okkur!  Og sumir spila auðvitað á þetta. Dýra steikin á matseðlinum er til dæmis ekkert endileg...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Annars verða allir drepnir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Annars verða allir drepnir
Mynd Skapandi einstaklingur með frumlega hugsun rekst
Nóg sé komið af Trump - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Nóg sé komið af Trump - Vísir
„Eftir tveggja ára óreiðu, grimmd, spillingu og vanhæfni, sem á sér enga hliðstæðu í nútímanum, gefst ykkur tækifæri til að segja: „Nú er nóg komið,““...
Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
📅 25.10.2026 👁️ 2
Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn Skylar SkyeÖrlög Carrick gætu ráðist í dag Mynd: Instagram Kona sem er mi...
19-year-old airlifted to hospital after serious motorbike accident in Tenerife
📅 25.10.2026 👁️ 2
19-year-old airlifted to hospital after serious motorbike accident in Tenerife
A 19-year-old man was seriously injured and a second man taken to hospital after a collision involving two motorcycles and a car on the TF-24 in Tener...
Norðan kaldi og snjó­koma til fjalla - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Norðan kaldi og snjó­koma til fjalla - Vísir
„Úrkomusvæði sem kemur úr austri mjakast yfir landið í dag með úrkomu, en sunnan- og vestanlands verður úrkomulítið þangað til í kvöld. Þó gæti hann h...
SUNDAY WEATHER: Temperatures up to 30°C as calima returns
📅 25.10.2026 👁️ 4
SUNDAY WEATHER: Temperatures up to 30°C as calima returns
Temperatures could reach 30°C in parts of the Canary Islands today, Sunday 25th October, with sunny spells, passing cloud and a return of calima, main...
Obama gagnrýndi Trump harðlega
📅 25.10.2026 👁️ 4
Obama gagnrýndi Trump harðlega
Fyrrum forseti Bandaríkjanna Barack Obama fór hörðum orðum um núverandi forseta Donald Trump á kosningafundum frambjóðenda Demókrataflokksins í Ohio o...
„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
📅 25.10.2026 👁️ 3
„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“ Mynd: Golli Reynir Pétur Steinunnarson vakti athygli landans árið 1985 þegar hann gekk hringinn í kring...
Fyrrverandi sjaríadómari hélt fyrirlestur í Stórmoskunni á Íslandi
📅 25.10.2026 👁️ 4
Fyrrverandi sjaríadómari hélt fyrirlestur í Stórmoskunni á Íslandi
Sheikh Muhammad Taqi Usmani, fyrrverandi dómari í sjaríadeild Hæstaréttar Pakistans, hélt fyrirlestur í Stórmoskunni á Íslandi í Skógarhlíð í Reykjaví...
Beneath Lanzarote: discover the volcanic tunnels of Cueva de los Verdes
📅 25.10.2026 👁️ 3
Beneath Lanzarote: discover the volcanic tunnels of Cueva de los Verdes
Lanzarote’s volcanic scenery is spectacular from the surface, but some of its most intriguing sights lie beneath your feet.In the north of the island,...
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
📅 25.10.2026 👁️ 3
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“ „Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segi...
2.000 Palestínumenn hraktir frá Hebron
📅 25.10.2026 👁️ 4
2.000 Palestínumenn hraktir frá Hebron
2.000 Palestínumenn voru hraktir af heimilum sínum í Hebron á Vesturbakkanum í gær. Ísraelski varnarmálaráðherrann Israel Katz segir að fólkið hafi ve...
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds að auðga samfélagið
📅 25.10.2026 👁️ 4
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds að auðga samfélagið
Mynd Mannréttindabarátta hefur mestu varðað um bætta ásýnd samfé
Krakkatía vikunnar: Ill­menni, bofs og Einar Ás­kell - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Krakkatía vikunnar: Ill­menni, bofs og Einar Ás­kell - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Four ways Labour could raise money in the Budget without hiking income tax
📅 25.10.2026 👁️ 3
Four ways Labour could raise money in the Budget without hiking income tax
Chancellor John Healey may need to raise money to boost his fiscal headroom - BBC Verify examines what options could be on the table.
Meta frestar breytingu á skilmálum til 20. nóvember
📅 25.10.2026 👁️ 4
Meta frestar breytingu á skilmálum til 20. nóvember
Meta, fyrirtækið sem rekur Facebook og Instagram auk annarra samfélagsmiðla, tilkynnti á föstudag að fyrirhuguðum breytingum á notendaskilmálum fyrirt...
Israel to close West Bank crossings on election day as crackdown escalates
📅 25.10.2026 👁️ 3
Israel to close West Bank crossings on election day as crackdown escalates
The Israeli Defense Forces announces restrictions on the movement of Palestinian workers in the run-up to Tuesday's election.
Erkibiskupsdæmið í New York samþykkir sáttagreiðslur til þolenda kynferðisofbeldis
📅 25.10.2026 👁️ 3
Erkibiskupsdæmið í New York samþykkir sáttagreiðslur til þolenda kynferðisofbeldis
Rómversk-kaþólska erkibiskupsdæmið í New York og lögmenn þess hafa samþykkt að greiða sáttagreiðslur að upphæð 800 milljónir dollara til þolenda kynfe...
Budget to include £1bn for social and affordable housing
📅 25.10.2026 👁️ 4
Budget to include £1bn for social and affordable housing
The move will take funding for the 10-year programme to more than £40bn.
Alþjóðaflugvöllurinn í Ríad opnaður að nýju
📅 25.10.2026 👁️ 2
Alþjóðaflugvöllurinn í Ríad opnaður að nýju
Alþjóðaflugvöllurinn í Ríad í Sádi-Arabíu verður opnaður að nýju í dag eftir tveggja vikna lokun vegna árása Húta á flugvöllinn. Hútar hafa gert nokkr...
Meghan broke contact with father in letter citing abuse claims
📅 25.10.2026 👁️ 3
Meghan broke contact with father in letter citing abuse claims
Sources close to the duchess said she warned her father last year that he would never meet his grandchildren.
Burnham open to 'honest discussion' on EU free movement
📅 25.10.2026 👁️ 4
Burnham open to 'honest discussion' on EU free movement
The PM said he wants a "factual" and "evidence-based debate" about returning to free movement between Britain and Europe.
Eldur í grilli í Bryggjuhverfi
📅 25.10.2026 👁️ 4
Eldur í grilli í Bryggjuhverfi
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst útkall uppúr klukkan 20:30 í kvöld vegna elds á svölum í raðhúsi í Bryggjuhverfinu í Reykjavík. Eldur hafði kvi...
Obama segir „nóg komið“ af Trump
📅 25.10.2026 👁️ 4
Obama segir „nóg komið“ af Trump
Obama segir „nóg komið“ af Trump Barack Obama gagn­rýndi Donald Trump á kosn­inga­fundi í Ohio. Spennan magn­ast fyrir afdrifa­ríkar þing­kosn­ingar. ...
Brazil election: Voters to choose between Lula and Bolsonaro's son
📅 24.10.2026 👁️ 5
Brazil election: Voters to choose between Lula and Bolsonaro's son
Flávio Bolsonaro, the son of Brazil's jailed former president, is presenting a strong challenge to Lula, 80, who is seeking a fourth term in office.
Brazil election: Voters choose between Lula and Bolsonaro's son
📅 24.10.2026 👁️ 1
Brazil election: Voters choose between Lula and Bolsonaro's son
Flávio Bolsonaro, the son of Brazil's imprisoned ex-president, is challenging Lula, who is seeking a fourth term in office.