„Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ - Vísir
„Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ - Vísir
📅 2026-04-30 22:44:47👁️ 13 lesið
Þetta sagði Drífa Snædal, talskona Stígamóta, í samtali við fréttastofu að loknum kynningarfundi dómsmálaráðherra í morgun þar sem aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi voru kynntar.Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, kynnti í morgun landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi gagnvart konum sem gildir til ársins 2030. Þetta er í fyrsta skipti sem slík áætlun er sett fram og samanstendur hún af 25 aðgerðum til að tryggja að Ísland uppfylli skilyrði Istanbúlsamninsgins sem var samþykktur árið 2011. Meðal helstu aðgerða er að þyngja refsingu fyrir kaupendur vændis með frumvarpi í haust. Stefnt er að því að lágmarksrefsing varði fangelsisdóm og að gerendur verði nafngreindir. Einnig verða þar til gerðar stofnanir fræddar um heiðurstengt ofbeldi og þvingaðar ófrjósemisaðgerðir gerðar refsiverðar samkvæmt hegningarlögum. Hagsmunasamtök þolenda kynferðisofbeldis fögnuðu áformunum.
Þurfi meiri forvarnir
„Mér finnst allar aðgerðirnar til bóta. Mér finnst það mjög til bóta að við séum komin með landsáætlun til að vinna gegn ofbeldi karla gegn konum. Þetta er miðað út frá málaflokknum dómsmálum,“ segir Drífa sem tekur fram að það sé mikilvægt að ýmis konar kynbundið ofbeldi sé viðurkennt af kerfinu. Það hafi verið á brattann að sækja að fá það viðurkennt í samfélaginu að um vandamál sé að ræða.„Við höfum verið að tala mjög mikið fyrir forvörnum, því það skiptir mjög miklu máli að ungt fólk geri sér grein fyrir því hvað samþykki, mörk og virðing í samböndum sé,“ segir hún og ítrekar mikilvægi þess að félagasamtök komi að borðinu.„Það erum við sem erum búin að vera að reka þessa baráttu áratugum saman. Það skiptir máli að okkar þekking og reynsla sé nýtt.“Hún fagnar frumvarpi dómsmálaráðherra um vændiskaup.„Ég held að það skipti sköpum að það hafi afleiðingar að brjóta af sér gagnvart konum. Þetta frumvarp er þess eðlis að það verður staðfest.“
Draumur að rætast
Jenný Kristín Valberg, verkefnastjóri Stígamóta, segir draum að rætast með nýjum aðgerðum dómsmálaráðherra.„Þetta er mjög metnaðarfullt og í rauninni fram úr mínum björtustu vonum. Ég er svona enn þá að meðtaka þetta allt saman vegna þess að það er nú ekki á hverjum degi sem maður fær í rauninni bara nánast allar sínar óskir uppfylltar. Mér finnst þetta vel ígrundað. Mér finnst þær hafa farið inn á flesta af þessum erfiðustu málaflokkum sem við höfum verið að reyna að vekja athygli á í langan tíma.“Hún fagnar til að mynda breytingum sem voru gerðar í vikunni á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Breytingin geti skipt sköpum.
„Svo auðvitað ætla þau að breyta löggjöfinni í kringum gerendur kaupa á mansali. Þannig að það verður mikill fælingarmáttur í því að það verði dómur og nafnbirting sem fylgir því. Vegna þess að þessi sekt sem hefur verið núna, hún skilur engin fótspor eftir á þinni sakaskrá. Og ég hugsa að þetta muni draga úr eftirspurn sem dregur þá úr framboði. Þannig að það verður þá vonandi hægt að grípa betur utan um þennan málaflokk“Spurð hvort eitthvað sé útistandandi eða mætti betur fara í aðgerðunum.„Þetta eru metnaðarfull markmið og vandinn verður auðvitað að fylgja þessu eftir. Ég er bjartsýn á að með samtali við alla aðila sem koma að þessum málum að þá geti þetta farið á farsælan og góðan veg.“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hyggst í nóvember leggja fram frumvarp til breytinga á lögreglulögum og gengið verður enn lengra ...
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar við Hagkaup á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi síðdegis í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu var lögr...
Fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að haft hafi verið samband við eigendur bílanna og tréð í kjölfarið fjarlægt. Í öðrum veðurtengd...
Afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar úr ráðherraembætti og umfjöllun RÚV þess efnis voru í brennidepli í upphafi óundirbúinna fyrirspurna á Alþingi í d...
Veðurfyrirbæri þetta myndast víða í fjörðum landsins í miklu hvassviðri eins og var í dag. Að sögn Þorsteins V. Jónssonar veðurfræðings er um vatnsstr...
Gheorghe Mihai Cacaliceanu, talsmaður Wolt-sendla, segir fund þeirra með forsvarsmönnum fyrirtækisins hafa gengið vel í dag. Fundurinn hófst klukkan 1...
Tré féll í miðborg Reykjavíkur í dag og olli tjóni á tveimur bílum. Þetta kemur fram í upplýsingapósti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að...
Að því er kemur fram á upplýsingasíðu Veðurstofunnar gilda viðvaranirnar ýmist fram á föstudag eða laugardag eftir svæðum. Talsvert hefur rignt víða á...
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir að framganga Ingu Sæland í þingsal hafi ekki komið henni á óvart, enda komi henni orðið fát...
Persónuvernd hefur sent frá sér niðurstöður frumkvæðisathugunar á vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rafræna vöktun á bílastæðum fimm innanlands...
Þetta segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu innt eftir viðbrögðum við því að Guðmundur Ingi Kristinsson, óháður þingm...
Laxveiði gekk talsvert betur í ár en í fyrra, sér í lagi á Vesturlandi. Í stærstu ánni veiddust um þúsund fleiri laxar en síðasta sumar.Laxveiðin gleð...
Í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi fyrr í dag bar Guðrún undir Ingu nýjustu fregnir af máli Guðmundar Inga Kristinssonar. Guðmundur lét af embætti s...
Lögreglan handtók 17 í tengslum við rannsókn á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti. Sex sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins þar til á morg...
Fjölmiðlunum þremur sem Bandaríkjaforseti úthýsti hefur verið hleypt inn í Hvíta húsið á ný. Þeim var vísað frá í morgun þvert á bráðabirgðaúrskurð dó...
Tekjur Isavia lækkuðu á fyrri helmingi ársins og meðal skýringa er fall flugfélagsins Play í fyrra og að rekstur fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli ...
Þetta kemur fram í Talnabrunni, fréttabréfi landlæknis. Ný lög um þungunarrof tóku gildi árið 2019 og var með þeim konum heimilt að óska eftir þunguna...
Sveitarfélög vilja takmarka gjaldskrárhækkanir um áramótin til að vinna gegn verðbólgu. Miklar umræður sköpuðust í gærkvöld á landsþingi Sambands ísle...
Það er ekki hlaupið að því fyrir vestræna fréttamenn að komast til Rússlands eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Bæði er það vegna viðskiptaþvingana...
Palestínski aðgerðasinninn Naji B. A. Asar, sem vakti athygli sumarið 2025 fyrir að skvetta rauðri málningu yfir ljósmyndara Morgunblaðsins, í mótmæla...
Boðað hefur verið til mótmæla við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í dag vegna komu Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Hann heldur ræðu á a...
A three-year-old girl has died after a drowning incident in the swimming pool of a holiday home in Tinajo, Lanzarote. The incident happened yesterday ...
Norska ríkisútvarpið NRK hefur fengið staðfest frá konungsfjölskyldunni að Wilma, hundur Ástríðar Noregsprinsessu, hafi drepist fáeinum dögum eftir að...
Áfengi er þegar selt á netinu hér á landi. Pawel segir skynsamlegt að setja þeirri starfsemi skýrar reglur sem taki mið af viðskiptafrelsi og áhyggjum...
Þetta staðfestir Anca Elena Cristea, yfirlandvörður í Landmannalaugum, í samtali við fréttastofu. Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Starfsmaður Vegager...
Íslensk málnefnd kallar eftir vitundarvakningu um mikilvægi þess að samskipti við börn fari í meiri mæli fram á mæltu máli og augliti til auglitis. Þö...
Breskir slúðurmiðlar keppast nú við að greina frá þessu. Davide skaust upp á stjörnuhiminninn árið 2022 þegar hann keppti í bresku raunveruleikaþáttun...
Friður hefur ríkt á svæðinu í fjögur ár en þar áður stóðu yfir grimmileg átök milli sömu fylkinga. Undanfarna mánuði hefur spennan aukist mikið aftur ...
Tilkynnt var í maí að hópur sérfræðinga hefði ákveðið að það sem áður var kallað „polycystic ovary syndrome“ yrði hér eftir kallað „polyendocrine meta...
Óhætt er að segja að neistaflug hafi orðið á Alþingi rétt í þessu í óundirbúnum fyrirspurnatíma. Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins ...
Ólga er meðal nágranna og innan borgarkerfisins út af endurbyggingu húss við Drafnarstíg 3 í Vesturbæ Reykjavíkur. Kvikmyndagerðarkonan Elísabet Ronal...
Alls voru 17 handteknir í umfangsmiklum lögregluaðgerðum á höfuðborgarsvæðinu á þriðjudag. Þetta kemur fram í viðtali mbl.is við Elínu Agnesi Eide Kri...
Veðurstofan varar við úrkomu og auknum líkum á skriðuföllum á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum. Talsverð úrkoma er þar og heldur áfram fram á sunn...
„Rétt fyrir klukkan sex í morgun þá er brotist inn hjá okkur. Það er maður sem mætir með sleggju og kemst þarna í gegnum rúðuna okkar. Rúðurnar okkar ...
Veðurfræðingur segir að lægðagangur haustsins sé hafinn. Gular viðvaranir hafa verið í mörgum landshlutum og fleiri eiga eftir að bætast við.„Það hefu...
Rannsóknin snýr að fíkniefnamisferli og peningaþvætti. Lögregla gerði húsleitir og handtökur á nokkrum stöðum og lagði hald á fjármuni og fíkniefni. M...
Þrátt fyrir bráðabirgðaúrskurð dómstóls um að gefa eigi fjölmiðlunum CNN, MS NOW og Politico aðgang að Hvíta húsinu var þeim ekki hleypt inn í morgun....
„Kannast ekki við þá mynd sem hefur verið dregin þar upp“ Guðrún Hafsteinsdóttir krafði Ingu Sæland svara um hver hafi ákveðið afsögn Guðmund...
Málið hefur verið í umræðunni um nokkurt skeið eftir að Guðmundur Ingi greindi frá því að Inga Sæland hefði gert honum að segja af sér ráðherradómi. Í...