Íbúum í hjólhýsabyggð við Sævarhöfða hefur verið gert að rýma svæðið fyrir 1. nóvember, en þá verður lokað fyrir rafmagn á svæðinu, skrúfað fyrir vatnið og lokað fyrir aðgengi að húsnæði þar sem íbúar hafa haft aðgengi að þvottavél og þurrkara. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV.
„Við erum bara öll að fara af límingunum af kvíða og erum, eins og eðlilegt er, mjög reið“