Reykjavíkurborg er í mikilli innviðaskuld og miðað við fjárhagsáætlun næsta árs er erfitt að halda við eignum hennar. Borgarstjórn átti sig þó á þeim gæðum sem hún er með í höndunum varðandi Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Þetta segir Björg Magnúsdóttir, forseti Borgarstjórnar. Hún var gestur í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.
Tillaga borgarfulltrúa meirihlutans um að kanna hvort rekstur Fjölskyldu- og húsdýragarðsins væri betur borgið í höndum einkaaðila en borgarinnar verður tekin fyrir hjá borgarstjórn í dag. Bein framlög borgarinnar til rekstursins hafa numið 3,6 milljörðum króna síðastliðin tíu ár.
„Við erum í mjög mikilli innviðaskuld“
Björg segir Fjölskyldu- og húsdýragarðinn mörgum borgarbúum kæran. „Sjálf ég og mín fjölskylda, við eigum þarna frábærar stundir á hverju ári. Grunnskólabörn sækja garðinn heim og leikskólar, við erum ekki að fara að breyta því. Það breytist ekki, við áttum okkur á því hvaða gæði og hvaða perlu við erum með í höndunum þar.“
Mikilvægt sé einnig fyrir borgarbörnin að læra inn á húsdýrin, það sé sérstaða garðsins. „Þarna er dýrahald í borginni, þessi nálægð við dýrin og læra á þau og kynnast þeim betur. Þannig að við erum ekki að fara fórna þessum gæðum, það skal algjörlega tekið fram.“
Björg segir málið snúast meira um að kanna hvort það séu möguleikar til staðar til uppbyggingu og eflingu garðsins.
„Til dæmis bara þegar kemur að veitingarekstri, að hafa þarna einhvern frábæran veitingastað. Hvort að einkaaðilar myndu vilja sjá um það. Taka yfir veitingasöluna að hluta til eða í heild sinni.“
Björg veltir einnig upp hvort það væri hægt að vera með veislusal í garðinum eða fjárfesting í flottari tækjum.
„Staðan hjá borginni er þannig að við erum í mjög mikilli innviðaskuld út um alla borg og erum núna að loka fjárfestingaáætlun og fjárhagsáætlun fyrir næsta ár og við sjáum það bara að við eigum bara í basli við að halda við eignunum okkar, hvort sem þú lítur til skólahúsnæðis eða íþróttamannvirkja eða hvað það nú er.“
Samstarf borgarinnar og einkaaðila
Þessi tillaga sé liður í því að athuga hvort sé hægt að búa til samstarfsverkefni um garðinn.
„Og fá þarna inn eitthvað einkaframtak og fá atvinnulífið með okkur. Það er hugsunin, að hleypa þessari vinnu af stað núna og fá hugmyndir. Það er heldur ekki þannig að stjórnmálamenn séu alltaf með bestu hugmyndirnar. Kannski eru einhverjir sem sjá aðra möguleika í garðinum heldur en okkur hefur dottið í hug þannig að nú hleypum við þessu af stað, vonandi.“
Hún reiknar með að tillagan verði samþykkt í borgarstjórn.
Til greina kemur að bjóða út hluta rekstrarins. „Það er klárlega sviðsmynd sem kemur til greina og það einmitt bara stendur í tillögunni sjálfri. Við ákváðum að hafa þetta svona temmilega opið, aðallega til að hleypa hugmyndum af stað og vinnunni.“
Björg segir að það sé vilji borgarfulltrúa í Viðreisn að tryggja jafnt aðgengi og koma í veg fyrir að rekstraraðili hækki verðið í garðinn um of.
„Við áttum okkur alveg á því hvaða gæði við erum með í höndunum. Við erum með gæði í höndunum sem hafa auðvitað verið byggð upp af frumkvæði Reykvíkinga, fyrir skattfé Reykvíkinga og það er auðvitað grunnurinn sem þessi garður stendur á. En nú er bara spurningin: viljum við fara í einhvers konar samstarfsverkefni til að reyna að gera hann enn flottari og enn betri og auka á aðsóknina?“
Vonast til þess að fá hugmyndir um rekstur garðsins í vor
Einnig megi hugsa þetta út frá ferðamönnum. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn gæti orðið sjálfstæður áfangastaður fyrir fjölskyldur sem heimsækja Ísland, að sögn Bjargar.
„Við höfum örugglega öll farið í góða garða í útlöndum. Ég held að við séum þarna með alveg einstakan stað í höndunum hér og það væri ótrúlega gaman að fá að þróa hann áfram.“
Björg reiknar með að vinnu við verkefnið verði hleypt strax af stað. Menningar- og íþróttasvið og fjármála- og áhættustýringasvið kortleggja reksturinn og svo verður tekin afstaða til þess hvernig reksturinn verði boðinn út.
„Hvort þetta verði samkeppnisútboð eða bara veitingasalan eða garðurinn í heild. Það þyrfti að tryggja aðgengi reykvískra barna og fjölskyldna.“
Hún vonast til þess að í vor verði komnar hugmyndir.
„Við erum auðvitað í alls konar vinnu núna, við erum í fjárfestingunni, við erum í fjárhagsáætlun fyrir næsta ár þannig að ég ætla nú ekki að ætlast til þess að þetta verði komið innan örfárra daga. Við höfum kannski svolítið það orð á okkur, þessi meirihluti, við viljum ganga í hlutina og ganga í verkin og láta þau tala. Þannig að ég vona að einhvern tímann í vor séum við farin að fá einhverjar hugmyndir um hvað væri snjallt að gera.“