„Við ætlum ekki að vakna upp við þá martröð“
Nútíminn birti yfirlýsingu frá nafnlausum einstaklingi sem segist bera ábyrgð á því að hafa málað yfir hinsegin fánann á kirkjutröppum Grafavogskirkju. Þar segist hann hafa viljað sjá viðbrögðin við því sem hann kallar „myndlistargjörning“. Ráðherra gefur lítið fyrir þessi skrif og segir rasista vilja endurskilgreina íslenska fánann. Hún hvetur fólk til að standa gegn sundrungu.
Sá sem málaði yfir hinsegin fánann á tröppum Grafarvogskirkju hefur sent frá sér yfirlýsingu sem birt var á Nútímanum. Þar talar hann um skemmdarverkið sem „myndlistargjörning“ sem hann hafi litið á sem „prófstein til þess að mæla hvar samfélagið væri statt“.
Í samtali við RÚV sagði séra Arna Ýrr Sigurðardóttir að um skemmdarverk væri að ræða, þar sem einhver hafi tekið sig til að næturlagi og málað íslenska fánann yfir hinsegin fánann. Málið er rannsakað sem hatursglæpur: „Þetta er ákveðin tegund af skemmdarverki. Það er verið að gera þetta á eign kirkjunnar sem við höfum yfirráð yfir. Það er ekki leyfilegt að hver sem er geti komið og gert hvað sem er þar,“ sagði séra Arna Ýrr.
Hafði hugsað lengi þetta
Hinsegin fáninn hefur verið á kirkjutröppunum í fimm ár og verður áfram. Eins og fram kom í viðtali við Örnu Ýrr á Vísi hafa áður verið unnin skemmdarverk á …