Verktaki segir blikur á lofti í byggingariðnaðinum og störfum hafi fækkað. Aftur á móti sé ólíklegt að einhver fari þá leið að skipta faglærðum út fyrir ófaglærða.
Mörg hundruð hafa verið lengi án vinnu
Atvinnuleysi í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð er talsvert - um mánaðamótin voru hátt í 1.200 atvinnulausir í starfsgreininni, og þar höfðu meira en 500 verið án atvinnu í sex mánuði eða lengur, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar.
Gylfi Gíslason framkvæmdastjóri byggingafyrirtækisins Jáverks segir blikur á lofti. „Það er greinilega talsverð fækkun starfandi í atvinnugreininni,“ segir Gylfi.
„Það hefur, eins og allir vita, gengið illa með nýbyggingar á íbúðum, sérstaklega. Þeir sem hafa verið eingöngu í þeim bransa hafa verið að draga saman seglin. Óhjákvæmilega með því að fækka starfsfólki. Því miður.“
Jón Bjarni Jónsson formaður Byggiðnar, sem er Félag byggingamanna, sagði í hádegisfréttum útvarps að brögð væru að því að reyndum og menntuðum iðnaðarmönnum væri sagt upp og ófaglærðir ráðnir í þeirra stað.
Segir uppsagnir faglærðra ólíklegar
Gylfi segist ekki hafa heyrt af slíkum vinnubrögðum. „Það kannast ég ekki við. Og ég held að það séu engar tölur sem styðja það, ég hef hvergi séð þær.“
Það hlýtur að vera ódýrara að borga ófaglærðum laun en faglærðum. Gæti þetta verið leið sem einhver er að nota til að minnka byggingarkostnað? „Mér finnst það afar ólíklegt. Því þetta snýst kannski ekki um krónur per klukkustund, heldur hvað gera menn á klukkustund og faglærðir menn, í flestum tilfellum, skila meiri og betri vinnu. Þannig að mér finnst þetta afar ólíklegt.“