Rúm tvö ár eru síðan ríkið, sveitarfélög í Eyjafirði og Verkmenntaskólinn á Akureyri skrifuðu undir samning um 1500 fermetra viðbyggingu við skólahúsnæðið á Akureyri. Framkvæmdir eru ekki farnar af stað og í haust þurfti VMA að bregða á það ráð að leigja húsnæði af Akureyrarbæ.
„Það var bara ekki hægt að koma fyrir þeim nemendafjölda. Við fengum mjög marga nýnema núna þannig við leituðum til Akureyrarbæjar. Þau tóku mjög vel í erindið og á endanum komumst við á þessa niðurstöðu,“ segir Benedikt Barðason, skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri
Vonast til að málið vinnist hratt í haust
270 nýnemar hófu nám við VMA í haust og er húsnæði skólans löngu sprungið. Mikil áskorun hefur verið að koma fyrir öllum þeim nemendafjölda sem sækir skólann en nemendur eru um 1300 talsins. Það verða annars til fjórða árs nemar á sérnámsbraut sem munu vera í gamla Barnaskólanum á Akureyri, sem nú kallast Rósenborg, alla föstudaga.
„Þetta er fyrst og fremst kannski svona öðruvísi húsnæði. Þarna er eldhús til dæmis, þarna er hægt að vera með heimilisfræðikennslu og það er hægt að kenna upplýsingatækni. Svo er þetta nálægt miðbænum þannig þegar það er gott veður er hægt að vera með vettvangsferðir. Það er stutt í söfnin og svona,“ segir Benedikt
Samtalið við ríkið og sveitarfélögin er þó virkt og Benedikt er bjartsýnn á að málið vinnist hratt í haust.
„Það er bara í ágætis farvegi. Það var tekin úttekt á húsnæðinu hér með tilliti til þess hvaða breytingar þarf að gera á húsnæðinu hérna með tilliti til nýbygginganna. Það var gert í ágúst og sú skýrsla er að koma. Við erum að fara funda í næstu viku og funda með bænum. Ég hef trú á því að þetta mjakist nú vel áfram í september og er bara bjartsýnn.“