Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir engar aðgerðir þess í tengslum við kjaraviðræður við Icelandair hafa leitt til þess að ekki hafi tekist að manna áhöfn flugs síðdegis í gær. Flugi Icelandair til Kaupmannahafnar síðdegis var aflýst.
Skýringin á því er líklega mannekla eða skipulag hjá Icelandair, segir Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA. Hvorki formlegar né óformlegar verkfallsaðgerðir standa yfir.
„Það er ekki verið að ræða neitt slíkt,“ segir Jón Þór. „Það er langur aðdragandi að slíku.“
Samningur Samtaka atvinnulífsins og Icelandair við FÍA rann út í lok september. Ekki hefur náðst samkomnulag um nýjan samning og SA vísaði kjaradeilunni til ríkissáttasemjara í apríl.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði í gær að aflýsingar vegna áhafnarskorts væru mjög sjaldgæfar, en kvaðst ekki trúa því að ástæðan væri óformlegar verkfallsaðgerðir.
„Eldsneytisverð hefur tvöfaldast núna á örskömmum tíma þannig ég trúi því ekki að þetta séu einhver samantekin ráð eða óformlegar verklagsaðgerðir. Við hérna hjá Icelandair og öðrum flugfélögum, við þurfum á allt öðru að halda í dag en einhverju slíku,“ sagði Bogi.
Fyrsti fundur í kjaraviðræðum FÍA og Icelandair var hjá ríkissáttasemjara í gær og til stendur að funda aftur á morgun.
Jón Þór segir fundinn í gær aðallega hafa snúist um að koma viðræðum formlega af stað.
„Við vorum bara að byrja í viðræðum,“ segir Jón Þór. „Þetta voru bara þessi formlegu atriði.“