Seðlabankinn telur meiri hættu en áður á því að verðbólga sé vanmetin hérlendis.
Þetta er á meðal þess sem kom fram í kynningu Karenar Á. Vignisdóttur, aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands, á fundi þjóðhagsráðs í dag.
Gerir Seðlabankinn ráð fyrir því að forsenduákvæði kjarasamninga muni virkjast en bankinn spáir því að verðbólga á seinasta ársfjórðungi verði 5,5%.
Beinar aðgerðir ríkisins ekki á dagskrá
Þjóðhagsráð kom saman fyrr í dag á þriðja fundi sínum á árinu en í ráðinu eiga sæti formenn stjórnmálaflokka sem sitja í ríkisstjórn, þó ætíð forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra, ásamt forystufólki ASÍ, BHM, BSRB, Kennarasambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Seðlabanka Íslands.
Á dagskrá fundarins var samtal ríkisstjórnarinnar, ASÍ og Samtaka atvinnulífsins um verðlagsþróun í samhengi við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.
Stýrihópur hefur nú verið stofnaður í kringum þetta samtal og kom fram á fundinum að markmiðið væri að auka líkurnar á því að kjarasamningar haldi í haust án þess þó að ráðast í beinar aðgerðir af hálfu ríkisins í kjaraviðræðunum, nema í tengslum við samstillt átak.