Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir samstöðu um það að brúa umönnunarbilið milli fæðingarorlofs og leikskóla en veltir því fyrir sér hvort hugmyndir um lögfestingu leikskólastigsins séu raunsæjar.
Átta þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að festa í lög rétt barna til að fá leikskólavist að loknu fæðingarorlofi.
Verulegur viðbótarkostnaður
Almar segir að ljóst sé að mikla undirbúningsvinnu þurfi til auk þess sem önnur verkefni þurfi að leysa sem SÍS vill að njóti forgangs.
„Það liggur fyrir skýrsla. Þar kemur strax í ljós að það er verulegur viðbótarkostnaður við að ná þessu markmiði og við gerum alveg skýlausa kröfu um það að það verði rætt á ásættanlegan hátt á milli ríkis og sveitarfélaga áður en við förum að ákveða nokkuð í þessum efnum,“ segir hann.
Almar bendir á að verkefnið væri bæði stórt og dýrt. Fjölga þyrfti bæði starfsfólki og leikskólum og ljóst sé að heildarkostnaðurinn gæti numið tugum milljarða króna.
„Það vex okkur svolítið í augum núna þegar við eigum mál sem þegar eru á borðinu gagnvart ríkinu sem eru mun umfangsmeiri og eru algjörlega óafgreidd í samskiptum ríkis og sveitarfélaga. Auðvitað erum við bara dauðhrædd við að fara að ræða þetta mál þegar samskiptin um önnur mál ganga eins og þau ganga.“