Veðurstofa Íslands varar við allhvassri sunnanátt á norðanverðu Snæfellsnesi í dag með hviðum að 25 metrum á sekúndu.
Aðstæður geti verið varhugaverðar fyrir vegfarendur, sérstaklega ökutæki sem taka á sig mikinn vind.
Útlit er fyrir meiri vind og meiri úrkomu í dag en var í gær.