Greint var frá því í síðustu viku að e.coli-gerlar hefðu fundist í neysluvatni á Borgarfirði eystra við reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits Austurlands. Íbúum var leiðbeint að sjóða neysluvatn sitt þar til væri búið að koma í veg fyrir frekari mengun á vatninu. Slík vinna hafði þó verið í gangi í nokkra mánuði en þetta er ekki í fyrsta sinn sem e.coli gerlar greinast þarna.
„Þegar að þessar aðstæður komu upp þá flýttum við því að tengja gegnumlýsingartæki eða útfjólubláttljós til þess að verjast þessari gerlamengun,“ segir Aðalsteinn Þórhallsson, framkvæmdastjóri HEF veitna á Austurlandi.
Nýja gegnumlýsingatækið á að koma í veg fyrir frekari mengun í vatnsbólinu en tækinu er ætlað að gera gerlana óvirka og koma í veg fyrir að þeir fjölgi sér. Tækið drepi þá þó ekki. Aðalsteinn telur að mengunin sé tilkomin af náttúrulegum orsökum.
„Við ákveðnar aðstæður í rigningartíð og þegar mikið rignir þá kemst yfirborðsvatn inn í lindirnar og þá er það væntanlega regnvatnið sem er að skola efnum og mengun úr yfirborði sem að kemst inn í lindirnar.“