Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða - Vísir
Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða - Vísir
📅 2026-04-22 10:32:17👁️ 2 lesið
Ríkisendurskoðun hefur gefið út skýrslu um málið, eftir að hafa ákveðið að eigin frumkvæði að ráðast í stjórnsýsluúttekt á gerð varnargarðanna. Skýrslan var kynnt á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þingsins í morgun.Samkvæmt skýrslunni telja bæði Ríkisendurskoðun og fjölmargir viðmælendur embættisins að varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt og að þrekvirki hafi verið unnið við krefjandi aðstæður.Embættið gerir hins vegar einnig ýmsar athugasemdir við utanumhaldið og segir meðal annars í ábendingum til forsætisráðuneytisins og dómsmálaráðuneytisins að verka- og ábyrgðaskipting þurfi að vera skýr, að ríkisaðila þurfi með reynslu og burði til stórframkvæmda og að skilgreina þurfi hvað felst í hugtakinu „mikilvægir innviðir“.Þá þurfi fjármála- og efnahagsráðuneytið að tryggja fjármögnun framkvæmda og fullnægjandi heimtur forvarnagjalds.
Skorti bæði þekkingu og burði til að fara með framkvæmdirnar
Með lögum um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga, sem sett voru árið 2023, var dómsmálaráðherra heimilað, að fenginni tillögu ríkislögreglustjóra, að taka ákvarðanir um nauðsynlegar framkvæmdir í þágu almannavarna.Ríkislögreglustjóra var falið að fara með framkvæmd aðgerða en samkvæmt skýrslunni fólst hlutverk embættisins aðallega í því að það lagði fram tillögur að varnaraðgerðum til ráðherra, sem byggðu á minnisblöðum hönnunar- og framkvæmdateymis svokallaðs innviðahóps.
Ríkisendurskoðun kemst, eins og fyrr segir, að þeirri niðurstöðu að ríkislögreglustjóri hafi ekki haft nauðsynlega þekkingu og burði til að fara með jafn umfangsmiklar og flóknar verklegar framkvæmdir. Þá gefi gögn málsins til kynna að verkefnið hafi reynst embættinu ofviða.Áðurnefndur innviðahópur var stofnaður af almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Hópurinn var samsettur af fulltrúum verkfræðistofanna Verkís og Eflu, Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands og fulltrúar almannavarnadeildar sátu suma fundi.Samkvæmt skýrslunni áttu fulltrúar HÍ og Veðurstofu hins vegar ekki sæti í hönnunar- og framkvæmdateymi innviðahópsins.„Innviðahópurinn var ekki skipaður með formlegum hætti, þ.e. ekki liggur fyrir erindisbréf til grundvallar störfum hans. Embætti ríkislögreglustjóra skilgreindi hvorki formlegt hlutverk hópsins og markmið gagnvart stjórnvöldum, né hlutverk einstakra aðila innan hans. Þá voru engin tímamörk sett um starfsemina. Engir samningar liggja fyrir við umræddar verkfræðistofur, sem mönnuðu hönnunar- og framkvæmdateymið, um aðkomu þeirra að framkvæmdum, ábyrgð þjónustusala, tímaverð, o.s.frv. Embættið leitaði ekki til annarra verkfræðistofa við myndun innviðahópsins eða eftir að eldgosahrinan við Sundhnúksgíga hófst árið 2023,“ segir í skýrslunni.
Ríkisendurskoðun kemst að þeirri niðurstöðu að ríkislögreglustjóri hefði þurft að skilgreina með mun skýrari hætti en gert var verkaskiptingu og ábyrgð einstakra aðila við uppbyggingu varnargarðanna.
Tillögurnar aldrei bornar undir óháðan aðila
Samkvæmt samkomulagi ríkislögreglustjóra og Vegagerðarinnar átti stofnunin að vera þátttakandi í innviðahópnum en átti ekki fastan fulltrúa. Ríkisendurskoðun segir það hins vegar hafa verið skynsama ráðstöfun þegar ríkislögreglustjóri fólk Vegagerðinni hlutverk verkkaupa ríkisins.„Vegagerðin býr yfir sérþekkingu á verklegum framkvæmdum, samningagerð vegna þeirra og fjárhagslegri umsýslu framkvæmda af álíka stærðargráðu. Enga slíka sérþekkingu er að finna hjá ríkislögreglustjóra. Vegagerðin var því betur til þess fallin að gæta hagsmuna ríkissjóðs,“ segir í skýrslunni.Áður hafði Verkís stýrt vali á verktökum fyrir hönd almannavarnadeildar.Samkvæmt skýrslunni telur Ríkisendurskoðun með öllu óljóst hvort ákvarðanir dómsmálaráðherra um uppbyggingu varnargarða hafi falið í sér heimild fyrir varnarfyllingum yfir veitumannvirki og gröft leiðarskurða. Ekki sé fjallað um slíkar framkvæmdir með beinum hætti í tillögum ríkislögreglustjóra og ákvörðunum ráðherra.Vísir/Vilhelm Ríkisendurskoðandi gagnrýnir að ríkislögreglustjóri hafi aldrei borið tillögur innviðahópsins undir óháðan aðila áður en þær voru kynntar ráðherra. Þá segir í skýrslunni að embættið hafi ekki óskað eftir sundurliðun kostnaðaráætlana né öðru niðurbroti um fyrirhugaðan kostnað.„Ríkislögreglustjóri hefði átt að leita sér óháðrar ráðgjafar svo að tryggja mætti að hagsmuna ríkissjóðs væri gætt,“ segir í skýrslunni. „Ríkislögreglustjóri gaf hönnunar- og framkvæmdateyminu engin fyrirmæli um hvernig vali á verktökum skyldi háttað né lagði fram kostnaðarviðmið. Þá gerði embættið engar ráðstafanir til að afstýra mögulegum hagsmunaárekstrum sem upp gátu komið í ljósi þess að sami aðili og sá um hönnun og undirbúning varnargarðanna hafði einnig umsjón með framkvæmdunum.“
Hvað eru „mikilvægir innviðir“?
Samkvæmt skýrslunni nam áætlaður heildarkostnaður varnargarðanna um tólf milljörðum króna í árslok 2025, þar af var kostnaður vegna varnargarða við Svartsengi 6,9 milljarðar króna.Ríkisendurskoðun beinir því til fjármála- og efnahagsráðuneytisins að tryggja fjármögnun framkvæmda um leið og heimild til aðgerða liggur fyrir, komi til frekari uppbyggingar eða sambærilegra verkefna í framtíðinni.
Þá segir að umtalsverður kostnaður hafi fallið á ríkissjóð vegna framkvæmda við varnargarða án þess að það liggi fyrir hvaða þýðingu hugtakið „mikilvægri innviðir“ hefur í samhengi almannavarna og hvaða innviði átti að verja samkvæmt lögunum frá 2023.Þess ber að geta að fjármála- og efnahagsráðuneytið áréttar í athugasemdum „að samkvæmt lögum um opinber fjármál er unnt að mæta tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum annars vegar með fjárheimildum í fjáraukalögum og hins vegar greiðslum úr almennum varasjóði, þar á meðal þeim sem tengjast náttúruhamförum og almannavarnarástandi.“Þá bendir dómsmálaráðuneytið á að fyrir Alþingi liggi frumvarp til nýrra heildarlaga um almannavarnir þar sem „ómissandi innviðir“ séu skilgreindir í fyrsta sinn.
Í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1 var fjallað um klípuna sem Trump hefur komið sér í þar sem hvorki gengur né rekur að fá Írani til að semja u...
Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaupa staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Hann gat ekki sagt til um það hvers eðlis hótunin var. Það ...
Hver er Íslendingurinn og eiginmaðurinn sem átti að eignast Vélfag Fréttin11. júní 2026InnlendarLeave a Comment Ivan Nicolai Kaufmann. Ivan Nicolai Ka...
Lögreglan handtók mann í gærkvöld sem er grunaður um að hafa stungið tvo með hnífi í spilasalnum Mónakó.Þetta staðfestir Guðmundur Ásgeirsson lögreglu...
A 19-year-old police officer hurt in a crash while responding to a report of a separate collision has died of her injuries.Northumbria Police said Jes...
John Healey sagði í dag af sér sem varnarmálaráðherra Bretlands. Hann segir að auknar fjárveitingar þurfi til að byggja upp hernaðargetu breska hersin...
Stjórnvöld hafa hert taumhald í hagstjórn með viðeigandi hætti til að bregðast við aukinni innlendri eftirspurn. Þrátt fyrir það hafa launahækkanir ve...
Ferðaþjónustuaðilar og íbúar á sunnanverðum Vestfjörðum og á Breiðafjarðareyjum hafa viðrað óánægju sína með að Breiðafjarðarferjan Baldur verði tekin...
Samtök Iðnaðarins benda á að laun hafi hækkað umfram matvælaverð og að skjalið dragi upp skakka mynd af verðinu. Þá fjöllum við um ólgu innan Samfylki...
Former DUP leader Sir Jeffrey Donaldson has taken the witness stand at his trial on sex abuse charges.He was called to give evidence by his defence ba...
Útboðsgögn eru aðgengileg á vef þeirra en útboðið stendur til klukkan 14, 14. júlí á þessu ári. Í tilkynningu Vegagerðarinnar kemur fram að brúin verð...
Varnarmálaráðherrann greinir frá þessu í færslu á X og birtir þar bréf stílað á forsætisráðherrann þar sem hann segist finna engra annarra kosta völ e...
Til viðbótar við þá sem týndu lífi hafa milljónir Evrópubúa þjáðst líkamlega og andlega af völdum hitabylgja á síðustu árum. Henri Kluge, yfirmaður Al...
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar og þingmenn stjórnarandstöðunnar tókust á um það á Alþingi í dag hvort uppfæra þyrfti fjármálaáætlun vegna brostinna fors...
Björn Þorláksson, blaðamaður á Samstöðinni, segir að viðtal hans við Margréti Friðriksdóttur í þættinum Rauða borðinu hafi vakið með ólíkindum ólík vi...
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, bendir á að reglur um aldurslágmark barna sem mega starfa í vinnuskólanum í Vestmannaeyjabæ leiði til þ...
Hermann greinir frá vistaskiptunum í færslu á samfélagsmiðlum. Þar segir hann að áætlunin hafi verið að hefja aftur störf á Morgunblaðinu eftir að haf...
Dani Dyer has joined the line-up for Strictly Come Dancing, a year after she was forced to withdraw from the BBC show when she broke her ankle.The med...
Sænska þingið átti að greiða atkvæði um frumvarp minnihlutastjórnar Ulfs Kristersson, forsætisráðherra, um að lækka tímabundið sakhæfisaldur úr fimmtá...
Ef þú trúir einhverju af eftirfarandi er líklega betra að hætta lestrinum núna: að loftslagsvísindamenn hafi ekki áttað sig á því að áður hafa komið h...
David Harbour er þekktastur fyrir að leika Jim Hopper í Stranger Things (2016-25) og Rauða verndarann í nokkrum Marvel-myndum. Um þessar mundir leikur...
„Það er sorglegt hve illa er tekið undir þennan undirskriftalista,“ skrifar Kolbeinn Reginsson fyrrverandi bæjarfulltrúi í Facebook hópinn Vinir Hamra...
The Canary Islands recorded their strongest year for private home builds in 14 years during 2025, but experts warn that construction levels remain wel...
Verkefnastjóri hjá Samtökum fyrirtækja í landbúnaði segir marga þætti koma til skoðunar þegar horft sé til hækkunar á matvælaverði en verð á matvöru á...
Age often influences the conditions of medical insurance policies. For this reason, when choosing private health insurance, it is essential to review ...
Íslensk-norski þingmaðurinn Mímir Kristjánsson kallar eftir því að norskir fjölmiðlar sýni konungsfjölskyldunni þar í landi meiri tillitssemi og samúð...
Áhrifavaldur með tæplega 12 þúsund fylgjendur á Instagram hefur vakið athygli fyrir myndband þar sem hann fer býsna hörðum orðum um Ísland. Margir Ísl...
Israeli Prime Minister Benjamin Netanyahu has "certainly gotten some things wrong", US Vice-President JD Vance has said, as ties between the two partn...
Járngerður, hagsmunasamtök íbúa um framtíð og endurreisn Grindavíkur, tekur undir með nýkjörinni bæjarstjórn Grindavíkur þar sem bæjarstjórn segir afs...
Formaður, varaformaður og ritarar Sjálfstæðisflokksins hætt á þingi Einu og hálfu ári frá alþingiskosningum hafa fjórir áhrifamenn úr Sjálfstæ...
Umdeild tillaga sænsku ríkisstjórnarinnar um að heimila að 13 ára börn verði sett í fangelsi hefur verið dregin til baka. Gunnar Strömmer dómsmálaráðh...
Hafró leggur til að landgrunnshlíðar Suðurlands frá Háfadjúpi í vestri til Papagrunns í austri verði friðlýstar til þess að koma í veg fyrir hnignun b...
Bakary Jaiju was 19 when he climbed into a wooden boat in the Gambia and set out for Europe. He would be at sea for seven frightening days as his supp...
Þá er hún nauðsynleg fyrir fyrstu mönnuðu geimferðina til yfirborðs tunglsins frá árinu 1972. Randy Bresnik mun leiða ferðina. Með honum fara einnig þ...
Swae Lee tilkynnti í dag um Evróputúr sinn í kjölfarið á útgáfu breiðskífunnar Same Difference sem kom út í apríl. Á túrnum kemur Lee fram í Varsjá í ...
Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Náttúrugrið, Verndarsjóður villtra laxastofna og Íslenski náttúruverndarsjóðurinn gáfu frá sér tilkynningu í ...
Breska ríkisstjórnin hyggst veita fjölmiðlaeftirlitinu Ofcom auknar heimildir til að grípa inn í dreifingu efnis á samfélagsmiðlum þegar talið er að „...
Skattfrelsi erlendra fjárfesta Í alþjóðlegri skattlagningu gildir að ríki skattleggi heimilisfasta og tekjur sem þar verða til. Dapurlegt ...
Declan Rice says he and his England teammates are still getting used to the heat in the US, as he admitted he got a telling off from his mum for turni...
Thousands of drivers faced lengthy delays on Tenerife’s TF-1 motorway yesterday after an overturned lorry brought traffic heading towards Santa Cruz t...
Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, er nú staddur á Grænlandi í opinberum erindagjörðum sem þingmaður og formaður Vestnorræna ráðsins. Jón kom til Grænla...
Gamalt fólk fær gervigreindardúkkur Einmana, aldrað fólk í Suður-Kóreu fær svokallaðar „umönnunardúkkur“ frá ríkinu. Helmingur íbúa er yf...
Afkoma hins opinbera hefur versnað milli ára samkvæmt bráðabirgðamatiHagstofunnar á afkomunni á fyrsta ársfjórðungi.Hallinn hjá hinu opinbera nam 23,7...
Nearly 3,000 patients a day had to be cared for in hospital corridors or make-shift treatment areas rather in a bed on a ward in England last month, f...
Stór hópur í Samfylkingunni, eða óflokksbundið jafnaðarfólk, hefur skrifað opið bréf þar sem nýju lögunum um brottfararstöð er mótmælt og krafist að f...
Öfund margra í Laugardalnum til sölu Njörvasund 13 Glæsilegt einbýlishús við Njörvasund 13 í Reykjavík er komið á sölu. Um er að ræða sérhannaða eign ...
Þrír indverskir farmenn særðust þegar bandaríski flotinn skaut á flutningaskip sem þeir voru á úti fyrir ströndum Óman. Siglingaráðherra Indlands grei...
Íranar segjast hafa lokað alfarið fyrir skipaumferð um Hormússund. Stofnun sem Íranar settu á fót til að stýra umferð og innheimta gjöld sagði í dag a...
Vaktin heldur áfram. Ég heiti Mist Grönvold og er hér með tekin við af Brynjólfi Þór.Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, segir brýnt að Evrópusam...