Matvælastofnun varar við neyslu nautahakks, merktu Krónunni, úr tveimur framleiðslulotum. Grunur leikur á um að salmonella sé í kjötinu. Viðvörunin á við um tvær framleiðslulotur með lotunúmerin 7014-26110 og 7017-26110.
Þetta er þriðja viðvörunin á hálfum mánuði vegna gruns um salmonellu í nautakjöti, frá tveimur framleiðendum.
Að þessu sinni er viðvörunin vegna nautahakks frá Stjörnugrís í umbúðum sem eru merktar krónunni. Matvælastofnun hvetur neytendur til að neyta hakksins ekki heldur farga því eða skila í búðina þar sem það var keypt.
Fyrr í þessum mánuði voru gefnar út viðvaranir vegna tveggja nautaafurða frá Ferskum kjötvörum. Önnur var vegna nautahakks sem er merkt Bónus (með lotunúmerin 105-6-106-04 og 105-6-107-01 og síðasta notkunardag 27. apríl) en hin vegna Smach Style-hamborgara merktum Íslandsnauti (með best fyrir dagsetningu 24. apríl).