Eiturþörungar greindust í miklu magni í sjó í Faxaflóa og fyrir sunnan land í vorleiðangri Hafró.
Því varar Matvælastofnun almenning við því að tína og borða krækling úr fjörum sunnan- og suðvestanlands, hvort sem er í Hvalfirði eða öðrum vinsælum stöðum til kræklingatínslu.
„Tíðafar í maí var tiltölulega gott, sérstaklega suðvestanlands og er ástæða til að ætla að eiturþörungar í sjó dafni víða vel,“ segir í tilkynningu frá MAST.