Maður hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir kynferðisbrot en maðurinn var með í vörslum sínum sjö ljósmyndir og þrjú myndbönd sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt.
Maðurinn geymdi myndefnið í HP-tölvuturni, Samsung farsíma, Medion tölvu og Samsung spjaldtölvu. Lögreglan haldlagði þessi tæki við húsleit hjá manninum.
Maðurinn játaði sök samkvæmt ákæru og féllst á kröfu um að tækin yrðu gerð upptæk.
Var hann dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og til að greiða verjanda sínum rúmlega 350 þúsund krónur.