Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úthlutaði 18 verkefnum styrk úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða, samtals 490 milljónum króna. Framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra segir mikil vonbrigði að ekkert verkefni í landshlutanum hafi fengið styrk.
„Þetta eru ákveðin vonbrigði. Norðurland vestra er kalt svæði þegar kemur að ferðaþjónustu og því skiptir máli að fá fjármagn í uppbyggingu innviða. Við erum að reyna að gera það sem við getum til að reyna að snúa vörn í sókn fyrir landshlutann,“ segir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna.
Aðeins tvö verkefni á öllu Norðurlandi hlutu styrk
Aðeins tvö verkefni á landsvæðinu frá Hvalfirði í vestri, norður yfir og austur í Fljótsdalshrepp fengu styrk. Rúmlega 10 milljónir voru veittar til að lagfæra gönguleiðir í Grímsey og 43 milljónir í stíga og brýr yfir Grjótagjá í Mývatnssveit. Sveinbjörg segir að sótt hafi verið um sjö styrki til verkefna á Norðurlandi vestra, tvær umsóknanna uppfylltu kröfur sjóðsins en hvorug fékk styrk. Þá bárust að minnsta kosti 9 umsóknir frá sveitarfélögum á Norðurlandi eystra.
„Stjórn SSNV hefur síðastliðið ár verið að reyna að ná eyrum stjórnvalda en ekki alveg haft erindi sem erfiði,“ segir Sveinbjörg.
Vestmannaeyjabær fékk hæsta styrkinn, tæplega 108 milljónir króna, fyrir tröppur eða göngustíg á Eldfelli í tengslum við listaverkið Sjónarhorn flakkarans eftir Ólaf Elíasson.