Ungir vinstri­menn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjall­konuna á nokkurn hátt“ - Vísir

Ungir vinstri­menn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjall­konuna á nokkurn hátt“ - Vísir

Ungir vinstri­menn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjall­konuna á nokkurn hátt“ - Vísir

Hinn 24 ára Kjartan Sveinn Guðmundsson er í Ungum vinstri grænum og hefur látið fyrir sér fara í hreyfingunni Ung gegn ESB-aðild. 

Hinn 23 ára Ármann Leifsson er já-sinni úr Ungu jafnaðarfólki, ungliðahreyfingu Samfylkingarinnar. Báðir staðsetja þeir sig vinstra megin á hinu pólitíska litrófi, þótt Ármann viðurkenni að Kjartan sé heldur róttækari.

Í Vísi að viðræðum takast þeir á um Evrópumálin og fara um víðan völl. Meðal þess sem ber á góma eru evran, efnahagur, verkafólk, „kolkrabbar“, Palestína og Ísrael, nýfrjálshyggja og varnarmál.

Byggi á hugmyndum nýfrjálshyggju

Kjartan hefur áhyggjur af því að aðild að Evrópusambandinu kynni að grafa undan verkalýðsbaráttu ríkjanna. 

„Það eru mjög fá samfélög sem hafa upplifað meira niðurrif heldur en norræn velferðarríki sem hafa gengið í ESB á sinni mynd,“ segir Kjartan Sveinn.

Kjartan telur hugmyndir nýfrjálshyggju vera rótgrónar innan sambandsins og tekur sem dæmi tillögu framkvæmdastjórnar sambandsins um verkefnið „EU Inc“ sem gengur út á það að fyrirtæki geti skráð sig í hvaða ESB-landi sem er og starfað eftir vinnulöggjöf þess lands óháð því hvar starfsfólkið vinnur í raun.

„Það hefur aldrei verið minnst á vægi stéttarfélaga eða vinnulöggjafar. Þú veist, það er bara ekki partur af þeirri formúlu í þessum lögum,“ segir Kjartan.

Ármann hafnar því að ESB byggi alfarið á hugmyndum nýfrjálshyggjunnar.

„Af hverju höldum við að menn eins og Elon Musk hvetji nánast til borgarastyrjaldar í Evrópu?“ spyr Ármann. „Það er af því að, ef eitthvað af öllum þessum stórveldum sem eru í heiminum, við erum með Kína, Bandaríkin, Evrópusambandið – ekkert af þessu er endilega einhverjir englar, – en þá eru það ESB sem er tilbúið að koma með löggjöf til að vernda fólk, til dæmis gegn tæknirisum.“

Hann nefnir þar persónuverndarlöggjöf, stafræn þjónustulög og löggjöf sem herðir samfélagsmiðla vegna ólöglegs efnis. Hann nefnir sömuleiðis reglugerðir er varða til dæmis Uber og Wolt, sem eigi að vera ráðningarsamband í staðinn fyrir verktöku.

Hamar (og sigð) Sameinuðu þjóðanna

Samband Evrópusambandsins við Ísrael ber einnig á góma í viðtalinu.

Kjartan bendir á að ESB-ríki hafi stungið upp á viðskiptabanni á Ísrael, en Þýskaland ítrekað stöðvað það. Slíka ákvörðun gæti Ísland tekið sjálft utan ESB, en innan sambandsins myndi Þýskaland alltaf setja stólinn fyrir dyrnar enda hafi ríki neitunarvald.

„Þetta er ekki ákvörðun sem að ríki innan ESB geta tekið vegna þess að Þýskaland stoppar það,“ segir Kjartan.

Þessu svarar Ármann: „Það eru þjóðir sem ég myndi segja að væru róttækari en Ísland hvað varðar Palestínu, eins og Spánn og Írland, í Evrópusambandinu. En það hefur ekki stoppað þær. Þetta eru frjálsar og fullvalda þjóðir,“ segir Ármann sem telur að Ísland gæti haldið sömu afstöðu til Ísrael/Palestínu hvort sem það er innan eða utan ESB, og að aðild myndi ekki neyða Ísland til að vera hlynntara Ísrael en nú er.

Kjartan tekur fram að Ísland eigi sér langa sögu í því að beita sér á alþjóðasviðinu.

„Hamarinn sem er notaður á þingi Sameinuðu þjóðanna er íslensk gjöf. Við vorum ein af fyrstu aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna og við höfum bara haft mjög langa sögu af því að beita okkur mjög vel,“ segir Kjartan.

Ármann skýtur prakkaralega inn í: „Komst þú með sigðina?“

„Hún kemur seinna. Ef við kjósum nei núna mun ég gefa þeim sigur,“ svarar Kjartan.

Hættur að tala við hundinn sinn

Sumir hafa haldið því fram að þjóðin sé klofin í herðar niður vegna atkvæðagreiðslunnar.

„Já, ég er hættur að tala við hundinn minn,“ svarar Kjartan aðspurður.

Bæði Ármann og Kjartan viðurkenna þó að hin hliðin hafi eitthvað til síns máls.

„Ég held að það séu alveg rök með og á móti og mér finnst mikilvægt að bera virðingu fyrir skoðunum Kjartans, sem ég hef nú reynt að gera hérna þó að ég hafi gaman af því að stríða honum,“ segir já-sinninn Ármann.

„Eins illa og ég get talað um Evrópusambandið,“ bætir nei-sinninn Kjartan við, „og eins og ég get málað hérna skrattann á vegginn hvað það varðar, þá veit ég og er mjög meðvitaður um það að þeir sem ætla að kjósa já eða eru að beita sér fyrir því koma frá góðum stað.“

Kjartann vill ekki ganga svo langt að kalla já-sinna föðurlandssvikara. 

„Þetta eru ekki landráðamenn, það er enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt,“ segir Kjartan Sveinn.

#enginn #esb #takast #ungir #vinstrimenn

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262927045d/ungir-vinstrimenn-takast-a-um-esb-enginn-ad-radast-a-fjallkonuna-a-nokkurn-hatt-

📰 Aðrar fréttir

Þorgerður segir alvarlegar hótanir í sinn garð á borði lögreglu
📅 28.08.2026 👁️ 0
Þorgerður segir alvarlegar hótanir í sinn garð á borði lögreglu
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir ýmislegt hafa þurft að breytast í sínu lífi síðustu vikur. Hún segir sér hafa borist alvarlegar...
„Já“ þarf mörgum sinnum en „nei“ bara einu sinni
📅 28.08.2026 👁️ 0
„Já“ þarf mörgum sinnum en „nei“ bara einu sinni
„Já“ þarf mörgum sinnum en „nei“ bara einu sinni Ef „nei“ verð­ur nið­ur­stað­an á laug­ar­dag leggst Evr­ópu­um­ræð­an í dvala en skýt­ur upp koll­in...
Þor­gerði hafa borist al­var­legar hótanir - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 0
Þor­gerði hafa borist al­var­legar hótanir - Vísir
Þorgerður segist ekki fylgjast með því hvað fólk sé að segja um hana, hún reyni að sneiða hjá samfélagsmiðlum. Hún verði samt sem áður vör við ýmisleg...
Hvaða áhrif hefði aðild að ESB á dómsvald á Íslandi?
📅 28.08.2026 👁️ 0
Hvaða áhrif hefði aðild að ESB á dómsvald á Íslandi?
Þjóðin gengur að kjörborðinu á morgun og greiðir atkvæði um hvort aðildarviðræður við Evrópusambandið verði hafnar að nýju. Fréttastofa óskaði nýverið...
Watch: Nepal army rescues survivors from hydropower tunnel
📅 28.08.2026 👁️ 0
Watch: Nepal army rescues survivors from hydropower tunnel
Nepal's Prime Minister Secretariat shared footage showing army personnel rescuing people from a hydropower tunnel.
Skýjað að mestu og hæg norð­læg eða breyti­leg átt - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 0
Skýjað að mestu og hæg norð­læg eða breyti­leg átt - Vísir
Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að það sé fremur svalt loft yfir landinu, svo hæsti hitinn í dag verði væntanlega einungis 13 til...
Hreyfingarnar funduðu á lokametrunum
📅 28.08.2026 👁️ 0
Hreyfingarnar funduðu á lokametrunum
Fjölmenni kom saman á útifundi Áfram Ísland á Austurvelli. Margir tóku til máls og þar á meðal Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra.Fundu...
Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 0
Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption - Vísir
GTA6 hefur verið í framleiðslu í meira en áratug en síðasti leikurinn í seríunni vinsælu kom út árið 2013. Beðið er eftir leiknum af mikilli eftirvænt...
Segir Katrínu sparka í konuna sína - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 0
Segir Katrínu sparka í konuna sína - Vísir
Fyrrverandi lykilfólk í Vinstri hreyfingunni - grænu framboði á borð við Katrínu, Steingrím J. Sigfússon, Ögmund Jónasson og Svandísi Svavarsdóttur er...
Fékk loksins svarið frá Bubba sem hann hafði beðið eftir - Afleiðingarnar voru þó óvæntar
📅 28.08.2026 👁️ 1
Fékk loksins svarið frá Bubba sem hann hafði beðið eftir - Afleiðingarnar voru þó óvæntar
Birgir Örn Steinarsson, betur þekktur sem Biggi í Maus, veltir því fyrir sér hvort íslenskt tónlistarlíf hafi pláss fyrir fimmtuga rokkara í dag. Hann...
Afmælispartý Bylgjunnar í beinni - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 1
Afmælispartý Bylgjunnar í beinni - Vísir
Bítið byrjaði afmælisveisluna í morgun og klukkan 9 verður svo sannkölluð endurkoma þegar Tveir með öllu snúa aftur í loftið. Þar verða Jón Axel og Gu...
Haraldur Noregskonungur látinn
📅 28.08.2026 👁️ 1
Haraldur Noregskonungur látinn
Haraldur fimmti Noregskonungur er látinn, 89 ára að aldri. Hann lést klukkan 4:35 í morgun að íslenskum tíma (6.35 að norskum tíma). Greint er frá þes...
Sjálfsmark hjá Hvíta húsinu – Birtu mynd af skallaerni ráðast á Kanadagæs en gæsin vann rimmuna
📅 28.08.2026 👁️ 0
Sjálfsmark hjá Hvíta húsinu – Birtu mynd af skallaerni ráðast á Kanadagæs en gæsin vann rimmuna
Bandaríkjastjórn herjar nú á Kanada með tollastríði og Kanadamenn verja sig með að svara í sömu mynt. Ljósmynd sem Hvíta húsið birti á samfélagsmiðlum...
Er sagður hafa lagt spilinn á borðið varðandi Úkraínu - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 1
Er sagður hafa lagt spilinn á borðið varðandi Úkraínu - Vísir
Miðillinn segir Ratcliffe hafa fundað með Aleksandr V. Bortnikov, yfirmanni leyniþjónustunnar FSB. Fundurinn hafi miðað að því að upplýsa Rússa um mat...
Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu - Vísir

Áfram Ísland – Fjölmenni á Austurvelli
📅 28.08.2026 👁️ 1
Áfram Ísland – Fjölmenni á Austurvelli
Fjölmenni var á samkomu samtakanna Áfram Ísland á Austurvelli á fimmtudag, tveimur dögum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um framhald aðildarviðræðna við...
Haraldur er látinn - Hákon er orðinn konungur
📅 28.08.2026 👁️ 1
Haraldur er látinn - Hákon er orðinn konungur
Nýr konungur tók við í Noregi í morgun þegar Haraldur féll frá. Hákon varð konungur um leið og faðir hans andaðist. Hann er fjórði konungur landsins f...
„Upptaka evrunnar væri upphaf endalokanna“ – Hagfræðiprófessorinn Richard Werner varar Íslendinga við því að afsala sér krónunni og gagnrýnir vaxtastefnu Seðlabankans
📅 28.08.2026 👁️ 0
„Upptaka evrunnar væri upphaf endalokanna“ – Hagfræðiprófessorinn Richard Werner varar Íslendinga við því að afsala sér krónunni og gagnrýnir vaxtastefnu Seðlabankans
„Upptaka evrunnar væri upphaf endalokanna. Þetta er versta efnahagsákvörðun sem nokkurt ríki gæti tekið,“ segir þýski hagfræðiprófessorinn Richard Wer...
Hlé á björgunaraðgerðum vegna flóðahættu
📅 28.08.2026 👁️ 1
Hlé á björgunaraðgerðum vegna flóðahættu
Björgunarfólki og almenningi hefur verið sagt að fara í öruggt skjól í Nepal vegna flóðahættu. Nepalski herinn segir að búið sé að bjarga 900 á þeim s...
Hægur vindur og skýjað víðast hvar
📅 28.08.2026 👁️ 1
Hægur vindur og skýjað víðast hvar
Útlit er fyrir hægan vind í dag og á morgun. Skýjað verður um mestallt land og dálitlar skúrir á víð og dreif. Bjartara verður yfir suðvestanverðu lan...
Hníf­jafnt á laugar­dag eða meiri munur en allir búast við? - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 1
Hníf­jafnt á laugar­dag eða meiri munur en allir búast við? - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kom í Pallborðinu á Vísi í gær. Stjórnmálafræðingurinn Eiríkur Bergmann og stjórnmálasálfræðingurinn Hulda Þórisdóttir vo...
Hvað kýs fræga fólkið? - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 1
Hvað kýs fræga fólkið? - Vísir
Þó nokkuð margir hafa gefið upp afstöðu sína til þjóðaratkvæðagreiðslunnar, ýmist með skrifum, þátttöku í hinum ýmsu samtökum eða hegðun á samfélagsmi...
Nína Richter skrifar: Allir eru ógeðslega massaðir í Brussel
📅 28.08.2026 👁️ 1
Nína Richter skrifar: Allir eru ógeðslega massaðir í Brussel
Mynd Það eru nokkrar vikur síðan ég byrjaði að lyfta aftur.
Slorævintýri á Nýbýlaveginum: „Við sprengjum allt utan af okkur“
📅 28.08.2026 👁️ 1
Slorævintýri á Nýbýlaveginum: „Við sprengjum allt utan af okkur“
Á Nýbýlaveginum í Kópavogi er matvöruverslunin Fiska þar sem yfirleitt er örtröð síðdegis og um helgar. Verslunin selur ýmsa matvöru frá öllum heimsho...
27-year-old woman in serious condition after scuba diving accident in Lanzarote
📅 28.08.2026 👁️ 1
27-year-old woman in serious condition after scuba diving accident in Lanzarote
A 27-year-old woman has been hospitalised in a serious condition following a scuba diving accident in Playa Blanca, Lanzarote, according to reports fr...
Tekinn á rúmlega tvöföldum hámarkshraða
📅 28.08.2026 👁️ 1
Tekinn á rúmlega tvöföldum hámarkshraða
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði þrjá ökumenn á yfir 100 kílómetra hraða á kvöld- og næturvaktinni. Sá sem fór hraðast mældist á 148 kílómetra ...
Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 1
Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum - Vísir
Haraldur V Noregskonungur er látinn, 89 ára að aldri. NRK greindi frá því í morgun að hann hefði látist klukkan 06:35 að staðartíma, eftir níu daga le...
Families fly to Nepal in search for 33 missing British nationals
📅 28.08.2026 👁️ 1
Families fly to Nepal in search for 33 missing British nationals
Among the British nationals reported missing are a 13-year-old girl and 14-year-old boy.
Haraldur Noregskonungur er látinn
📅 28.08.2026 👁️ 1
Haraldur Noregskonungur er látinn
Haraldur V. Noregskonungur er látinn á nítugasta aldursári eftir stutta sjúkdómslegu. Heilsu konungs hafði farið nokkuð hrakandi síðustu misseri og ár...
Norway's King Harald dies aged 89
📅 28.08.2026 👁️ 1
Norway's King Harald dies aged 89
The late king, who reigned for 35 years, broke with tradition by marrying a commoner and was widely loved by Norwegians.
Haraldur V Noregs­konungur er látinn - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 1
Haraldur V Noregs­konungur er látinn - Vísir
Greint er frá því að konungur hafi látist klukkan 06:35 að staðartíma í morgun, eða klukkan 4:35 að íslenskum tíma. Konungurinn hafði legið á Ríkissjú...
7 ways travellers stay entertained on their Canary Islands adventures
📅 28.08.2026 👁️ 1
7 ways travellers stay entertained on their Canary Islands adventures
The Canary Islands offer plenty of attractions, from volcanic scenery and Atlantic coastlines to charming towns and natural landscapes, however, trave...
DGT confirms changes to traffic lights from October - here’s what drivers need to know
📅 28.08.2026 👁️ 1
DGT confirms changes to traffic lights from October - here’s what drivers need to know
Drivers in the Canary Islands and across Spain will see a change to traffic light sequences from 1st October 2026, following an amendment to Spain's G...
„Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ - Vísir
📅 28.08.2026 👁️ 1
„Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ - Vísir
„Þetta er auðvitað ekkert venjulegt mál,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra Íslands, að loknum samstöðufundi í gær.  „Ég hef ákv...
More than 300 people ordered to leave ‘shanty town’ in Costa Adeje within 15 days
📅 28.08.2026 👁️ 1
More than 300 people ordered to leave ‘shanty town’ in Costa Adeje within 15 days
Adeje Council has ordered more than 300 people living illegally in makeshift homes, shacks, and caravans in El Puertito de Adeje in the south of Tener...
E-bike and e-scooter battery fires cause of 18 deaths and nearly 700 injuries
📅 28.08.2026 👁️ 1
E-bike and e-scooter battery fires cause of 18 deaths and nearly 700 injuries
Fatalities included people who inhaled toxic fumes from fires or became trapped inside burning homes.
18 deaths from battery fires show hidden danger of UK's e-bike boom
📅 28.08.2026 👁️ 1
18 deaths from battery fires show hidden danger of UK's e-bike boom
Fatalities included people who inhaled toxic fumes from fires or became trapped inside burning homes.
Serial rapist police officer passed vetting despite warnings
📅 28.08.2026 👁️ 1
Serial rapist police officer passed vetting despite warnings
Alan Greer was investigated by police in 2002 and 2005 for making inappropriate phone calls to women, with one case resulting in a formal police cauti...
Breytir Ontario-vatni í Ameríkuvatn
📅 28.08.2026 👁️ 1
Breytir Ontario-vatni í Ameríkuvatn
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið út forsetatilskipun um að Ontario-vatn verði endurskírt og verði framvegis kallað Ameríkuvatn. Hann undirri...
Trump administration illegally retaliated against Anthropic, judge says
📅 28.08.2026 👁️ 1
Trump administration illegally retaliated against Anthropic, judge says
The AI startup has been at loggerheads with the Pentagon over the use of AI by the US military.
Rekin vegna umfjöllunar um aðstæður bandarískra hermanna á Abraham Lincoln
📅 28.08.2026 👁️ 1
Rekin vegna umfjöllunar um aðstæður bandarískra hermanna á Abraham Lincoln
Þrír fjölmiðlamenn á Stars and Stripes, fjölmiðil bandaríska hersins, ætla að fara í mál við bandaríska varnarmálaráðuneytið vegna uppsagna á fjölmiðl...
Rekin vegna umfjöllunar um aðstæður bandarískra hermanna í Abraham Lincoln
📅 28.08.2026 👁️ 0
Rekin vegna umfjöllunar um aðstæður bandarískra hermanna í Abraham Lincoln
Þrír fjölmiðlamenn á Stars and Stripes, fjölmiðil bandaríska hersins, ætla í mál við bandaríska varnarmálaráðuneytið vegna uppsagna á fjölmiðlinum.Rit...
UK weather: thunderstorms and rain forecast for bank holiday weekend
📅 28.08.2026 👁️ 1
UK weather: thunderstorms and rain forecast for bank holiday weekend
The weather will remain unsettled across the next few days with showers, longer spells of rain and thunderstorms all likely at times across the weeken...
NHS bosses warn of chaos in ADHD and autism care
📅 28.08.2026 👁️ 1
NHS bosses warn of chaos in ADHD and autism care
Costs are spiralling out of control as unregulated private providers capitalise on demand, say managers.
Biðla til íbúa Kherson um að yfirgefa borgina
📅 28.08.2026 👁️ 1
Biðla til íbúa Kherson um að yfirgefa borgina
Yfirvöld í borginni Kherson í Úkraínu hafa beðið íbúa að yfirgefa borgina. Héraðsstjórinn Oleksandr Prokudin sagði í færslu á Telegram að hann biðlaði...
Biðja íbúa Kherson um að yfirgefa borgina
📅 28.08.2026 👁️ 0
Biðja íbúa Kherson um að yfirgefa borgina
Yfirvöld í borginni Kherson í Úkraínu hafa beðið íbúa að yfirgefa borgina. Héraðsstjórinn Oleksandr Prokudin hvatti alla íbúa um að yfirgefa borgina, ...
Upp­sagnirnar hafi líka á­hrif á þá sem eftir verða - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
Upp­sagnirnar hafi líka á­hrif á þá sem eftir verða - Vísir
Tæplega níutíu starfsmönnum var sagt upp hjá Reykjavíkurborg í vikunni vegna skipulagsbreytinga. Uppsagnirnar náðu til velferðar-, frístunda- og skóla...
Bylgjan heiðraði goð­sögnina Þor­geir - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
Bylgjan heiðraði goð­sögnina Þor­geir - Vísir
Þorgeir hóf útvarpsferil sinn á Rás 2 þegar stöðin tók til starfa árið 1983 og var ráðinn forstöðumaður. Hann kom svo við á Stjörnunni áður en hann fl...
Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðug­leika“ - Vísir
📅 27.08.2026 👁️ 1
Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðug­leika“ - Vísir
Eins og þjóðinni allri ætti að vera kunnugt ganga Íslendingar að kjörborðinu 29. ágúst til að greiða atkvæði um það hvort Ísland eigi að hefja á ný að...
Greens call for temporary ban on new data centres
📅 27.08.2026 👁️ 1
Greens call for temporary ban on new data centres
Zack Polanski wants stricter rules to limit the use of water and energy by data centres for AI.