Starfsmaður Landsnets sem varð fyrir rafstraumi í vinnuslysi í Borgarfirði var flutt til Noregs í aðgerð eftir slysið. Starfsmaðurinn er kona á þrítugsaldri. Þetta herma heimildir Vísis og DV. Slysið átti sér stað á mánudag við tengivirki í Borgarfirði.
Ekki fást upplýsingar um líðan konunnar.
Andri Ólafsson, samskiptastjóri Landspítalans gat ekki staðfest að konan hefði verið flutt út en segir að sérsamningur sé á milli Landspítalans og Haukeland háskólasjúkrahússins í Bergen í Noregi til meðferðar á brunasárum.
Jónas Hallgrímur Ottósson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, segir að lögreglurannsókn sé hafin á atvikinu. Þá sé Vinnueftirlitið einnig með slysið til rannsóknar.
Jónas segir að lögregla rannsaki tildrög og orsakir slyssins en ekki sé hægt að veita upplýsingar um það á þessum tímapunkti. Það eina sem lögregla geti staðfest varðandi slysið sé að viðkomandi sem varð fyrir rafstraumi hafi verið starfsmaður Landsnets og að fleiri starfsmenn hafi verið á svæðinu þegar slysið varð.
Valgeir Örn Ragnarsson, forstöðumaður samskipta hjá Landsneti, segir að ekki verði veittar upplýsingar um líðan starfsmannsins.
Ákveðið var í gær að fresta opnum haustfundi sem halda átti á morgun, 1. október, í Vör.
Í tilkynningunni segir að hjá Landsneti starfi samheldinn hópur fólks sem láti sig hvert annað varða. Hugur starfsfólks sé hjá samstarfsfélaga sínum sem slasaðist á mánudaginn.