Undirskriftasöfnun hefur verið sett af stað á Ísland.is þar sem þess er krafist að Reykjavíkurborg endurskoði og afturkalli úthlutun lóðarinnar við Suðurlandsbraut 76 sem úthlutað var fyrir fyrirhugaða byggingu mosku.
Sigfús Aðalsteinsson stendur fyrir undirskriftasöfnunni og hafa 2.764 einstaklingar skrifað undir þegar þetta er skrifað. Söfnunin stendur yfir frá 26. maí til 1. júlí 2026.
Vísað til tafa á framkvæmdum
Í lýsingu undirskriftalistans er bent á að langur tími sé liðinn frá því lóðinni var úthlutað án þess að framkvæmdir hafi hafist. Þar kemur fram að í mörgum tilvikum séu gerðar kröfur um að framkvæmdir hefjist innan ákveðins frests eftir lóðaúthlutun.
Þeir sem standa að listanum telja því eðlilegt að borgaryfirvöld endurmeti ráðstöfun lóðarinnar með hliðsjón af jafnræði, skipulagsmarkmiðum og hagsmunum borgarbúa.
Kalla eftir gagnsæi og endurmati
Í kröfunum er meðal annars lagt upp með að farið verði opinberlega yfir skilmála úthlutunarinnar og upplýst hvort skilyrði um framkvæmdatíma hafi verið uppfyllt.
Jafnframt er lögð áhersla á að borgarlóðir séu nýttar með virkum hætti, að sömu reglur gildi um alla lóðarhafa og að borgin tryggi gagnsæi og jafnræði í meðferð lóðaúthlutana.
Söfnunin er birt á undirskriftavef Ísland.is þar sem almenningi gefst kostur á að lýsa stuðningi við kröfuna.
Forsvarsmaður listans
Nútíminn hafði samband við Sigfús Aðalsteinsson sem vildi koma eftirfarandi á framfæri:
„Þess er krafist að Reykjavíkurborg endurskoði og afturkalli úthlutun lóðarinnar við Suðurlandsbraut sem úthlutað var fyrir fyrirhugaða moskubyggingu, þar sem framkvæmdir hafa ekki hafist innan eðlilegs og ásættanlegs tíma frá úthlutun. Þá teljum við að moska eigi ekki heima í dyragætt Reykjavíkurborgar eða bara á Íslandi almennt. Því er þess krafist að með undirskriftasöfnun á Ísland.is að farið verði yfir skilmála úthlutunarinnar opinberlega, upplýst verði hvort skilyrði um framkvæmdatíma hafi verið uppfyllt, og að lóðin verði tekin til baka.“
Hægt er að sjá undirskriftalistann hér.