Dóttir konu sem lést í umönnun læknis árið 2019 segir undarlegt að því sé jafnað við refsingu að læknirinn hafi verið sviptur starfsleyfi. Hún vonar að Landsréttur komist að annarri niðurstöðu en Héraðsdómur Reykjaness sem vísaði máli hans frá dómi.
Héraðsdómur Reykjaness vísaði máli héraðssaksóknara gegn Skúla Tómasi Gunnlaugssyni hjartalækni frá í gær. Hann var ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum heilbrigðisstarfsmanna vegna andláts konu sem lést í ummönnun hans á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 2019.
Eva Hauksdóttir, dóttir konunnar sem lést, segir það erfitt að málinu hafi verið vísað frá. Héraðsdómur mat sem svo að Skúla hafi verið refsað vegna málsins þegar hann var sviptur lækningaleyfi 2021. Skúli Tómas hefur alltaf haldið því fram að hann hafi ekki brotið lög.
„Auðvitað fær þetta á fólk, það fær alltaf á fólk þegar máli sem það á aðild að á einhvern hátt er vísað frá dómi. En mér finnst þetta aðallega vera undarleg rök, að því skuli vera jafnað við refsingu að maðurinn hafi verið sviptur starfsleyfi,“ segir Eva.
Ákærunni á hendur Skúla Tómasi var vísað frá á grundvelli ákvæðis Mannréttindasáttmála Evrópu um bann við tvöfaldri refsingu (ne bis in idem). Samkvæmt reglunni má ekki refsa fólki tvívegis eða gera því að sæta tvöfaldri málsmeðferð vegna sama máls.
Segir aðstandendur brotaþola lítið geta gert
Eva gerir ráð fyrir því að ákæruvaldið kæri frávísunina til Landsréttar þar sem hún vonast til þess að niðurstaðan verði önnur.
„Ég vil að ákæruvaldið fari með þetta fyrir Landsrétt, sem mér finnst líklegt að það geri. Það væri skrítið ef það myndi ekki gera það. Og ég vil að Landsréttur komist að þeirri niðurstöðu að túlkun héraðsdómara á dómi Mannréttindadómstóls Evrópu eigi ekki við við þessar aðstæður,“ segir Eva og vísar til tveggja dóma Mannréttindadómstólsins sem vísað til í héraðsdómi.
Málið tekur á alla sem að því koma, segir Eva. Meðferð málsins hefur tekið langan tíma en það var sent til ákærumeðferðar í janúar 2023.
„Þetta tekur á þá sem eiga einhverjar einkaréttarkröfur í málinu og brotaþola þegar því er að skipta. Brotaþoli í þessu tilviki er náttúrulega látinn en þetta tekur líka á sakborning og af þeim ástæðum, vegna þess að það tekur svo á sakborninga, fá þeir vægari refsingar af því þeir hafa þurft að bíða svo lengi.“
Eva segir aðstandendur brotaþola lítið geta gert í þessum aðstæðum annað en að vona að málið fari fyrir Landsrétt og niðurstaðan verði önnur.
„Ef svo ólíklega fer að Landsréttur staðfesti þennan undarlega úrskurð verðum við bara að sjá til. Ég er allavega ekki búin að ákveða að bregðast við eins og þetta sé endanlegt – ég ákveð það þegar þar að kemur hvað ég geri.