Aðeins eitt olíuflutningaskip sigldi um Hormússund í gær. Skipið, sem var á leið til Rizhao við austurströnd Kína, er af næststærstu gerð olíuflutningaskipa, svokallaðri VLCC (very large crude carrier). Búist er við því að það nái höfn um miðjan næsta mánuð. Umferð um sundið hefur ekki verið svona lítil síðan í fyrri hluta maí.
Í fyrradag sigldu þrjú olíuflutningaskip um sundið, samkvæmt gögnum greiningarfyrirtækisins Kpler sem lesa má um í frétt norska ríkisútvarpsins, NRK.
Árásir Bandaríkjahers á Íran síðustu nætur hafa einkum verið gerðar með það að markmiði að veikja getu Írana til að ráðast á kaupskip í Hormússundi. Íranar hafa ráðist á nokkur skip á síðustu vikum því skipin sigldu um siglingaleiðir sem þarlend stjórnvöld höfðu ekki samþykkt. Stjórnstöð Bandaríkjahers hélt því fram eftir árásir næturinnar að sundið væri opið.
Umferð um Bab el-Mandeb-sund dregst einnig saman
Samkvæmt greiningu Kpler sigldu 32 olíuflutningaskip um Bab el-Mandeb-sund í gær en það tengir saman Rauðahaf og Adenflóa. 18 þessara skipa voru á leið úr Rauðahafi, þar af voru níu skip hlaðin hráolíu. Í fyrradag sigldu 26 skip um sundið.
Olíuflutningar frá Arabíuskaga um Bab el-Mandeb-sund hafa aukist talsvert þar sem umferð um Hormússund hefur nær stöðvast eftir að stríð Írans og Bandaríkjanna hófst í febrúar.
Skipaflutningum um sundið stafar þó ógn af Hútum í Jemen sem tilkynntu í vikunni um hafnbann á sádi-arabískar hafnir. Þeir gerðu árásir á tvö olíuflutningaskip á Rauðahafi á miðvikudag.
Svo virðist sem dregið hafi úr umferð um sundið síðan Hútar tilkynntu um hafnbannið. 44 skip sigldu þar um degi áður en bannið var tilkynnt.
Stigvaxandi átök í Mið-Austurlöndum og hótanir Húta hafa þrýst olíuverði upp á við á síðustu dögum. Verð á Brent-hráolíu rauf 100 Bandaríkjadala múrinn í gær, í fyrsta sinn síðan í maí.