Umfangsmikil leit að einstaklingi stendur nú yfir í Lundahverfi og Gerðahverfi á Akureyri og hafa allar björgunarsveitir á Eyjafjarðarsvæðinu verið kallaðar út til að aðstoða lögreglu við leitina.
Þetta staðfestir Lögreglan á Norðurlandi eystra í samtali við fréttastofu en frekari upplýsingar verða ekki veittar að svo stöddu.
Samkvæmt heimildum fréttastofu er einstaklingurinn sem leitað er að undir lögaldri, en lögregla og viðbragðsaðilar hafa ekki staðfest það.