Úbreiðsla ebólufaraldursins sem nú geisar í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó er sú hraðasta í þekktri sögu veirunnar. Dauðsföll nálgast 1.500 og enn gætu verið nokkrir mánuðir þar til bóluefni verður tilbúið til notkunar.
Yfirvöld í Kongó lýstu ebólufaraldrinum formlega yfir 15. maí. Síðan þá hefur Bundibugyo-afbrigði veirunnar breiðst hraðar út í landinu en nokkru sinni fyrr – hraðar en í öllum þeim sextán ebólufaröldrum sem herjað hafa á íbúa þess.
Erfitt að segja til um hvenær faraldurinn nær hámarki
Samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum í Kongó hafa alls 3.360 smit verið staðfest og veiran hefur nú greinst í fimm héruðum í austurhluta landsins.
1.487 hafa látist, 45 prósent þeirra sem hafa greinst með sjúkdóminn. Átök á mörgum þeirra svæða sem verst hafa orðið úti hafa torveldað viðbrögð heilbrigðisyfirvalda verulega.
Erfitt er að segja til um hvenær faraldurinn nær hámarki, segir sérfræðingur hjá Lýðheilsustofnun landsins. Enn sé langt þangað til það takist að ná tökum á honum.
Klínískar rannsóknir á bóluefni hófust í júlí
Yfirvöld í Kongó hafa gripið til ýmissa aðgerða til að hafa hemil á útbreiðslu veirunnar og heilbrigðisstarfsfólk keppist við að draga úr smitum.
Eftirlit hefur verið aukið, tugir meðferðarstöðva hafa verið reistar og fjölda rannsóknarstofa hefur verið komið upp.
Klínískar rannsóknir á bóluefni gegn Bundibugyo-afbrigðinu hófust í byrjun júlí en þær gætu staðið yfir í allt að fjóra mánuði.