Ísraelsk stjórnvöld saka Tyrki um ógnandi tilburði með fyrirætlunum um að senda herlið til flugherstöðvar í norðvestanverðu Sýrlandi, nærri borginni Aleppo. Til að koma í veg fyrir það gerði Ísraelsher loftárás á stöðina í gærmorgun samkvæmt tilkynningu forsætisráðuneytisins sem birt var í gærkvöld.
Sýrlendingar hefðu jafnframt rofið samkomulag um óbreytt ástand með því að þiggja tyrkneska hernaðaraðstoð. Sýrlendingar hefðu hunsað aðvaranir um að allur liðsafnaður utanlands frá ógnaði öryggi Ísraels, segir í yfirlýsingunni.
Tyrkir höfnuðu umsvifalaust ásökunum Ísraelsmanna og sögðu þá aðeins með þeim vilja réttlæta árásina.
Bandaríski sendiherrann í Tyrklandi, sem jafnframt er erindreki fyrir Sýrland, fordæmdi árásina í færslu á X og sagði hana marka óþarfa stigmögnun sem geri ekkert til að auka stöðugleika í heimshlutanum. Slík fordæming Bandaríkjamanna á aðgerðum Ísraela er harla fátíð.
Tyrkland var fyrsta múslímaríkið til að viðurkenna sjálfstæði Ísrael en samskiptin við Recep Tayyip Erdogan forseta hafa verið erfið enda hefur hann iðulega fordæmt framferði ríkisstjórnar Benjamíns Netanjahús, ekki síst á Gaza.