Tveir eru látnir eftir að lítil flugvél hrapaði á húsþak á einbýlishúsi í Þýskalandi klukkan 11 í morgun. Þeir voru báðir farþegar í vélinni.
Slysið varð í Ganderkesee sem er í Neðra-Saxlandi.
Íbúar hússins voru á ferðalagi þegar slysið varð og húsið því mannlaust. Ekki liggur fyrir hvað olli hrapi flugvélarinnar.
Hús í 100 metra radíus við slysstaðinn voru rýmd og af öryggisástæðum var lokað fyrir rafmagn í götunni um tíma.