Tveir hafa verið í gæsluvarðhaldi í síðan í mars vegna árásar í bílakjallara við Höfðatorg í Reykjavík. Gildandi gæsluvarðhaldsúrskurður er til 20. maí. Árásin er rannsökuð sem tilraun til manndráps.
Að sögn Ævars Pálma Pálmasonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, miðar rannsókn ágætlega en hann segir hana gríðarlega umfangsmikla.
„Við höfum tekið fjölda af skýrslum og sendum sýni til rannsóknar erlendis. Það er verið að fara yfir og vinna gögn sem hefur verið aflað í málinu.“
Ævar skýrir að til dæmis hafi þurft að setja upp aðstæður á vettvangi til að meta hraða bíls sem grunur er á að hafi verið notaður sem vopn.
Þrettán eru enn með réttarstöðu sakbornings.
Mennirnir tveir voru grunaðir um grófa líkamsárás og tilraun til manndráps í bílakjallara undir Höfðatorgi. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru báðir mennirnir erlendir ríkisborgarar, annar frá Palestínu og hinn fæddur í Svíþjóð með ættir að rekja til Sómalíu.
Samkvæmt heimildum fréttastofu snerust átökin um nokkur hundruð þúsund króna skuld og þeim lauk með því að Land Rover Defender-jeppa var ekið á einn þeirra sem ætlaði að innheimta skuldina og hann síðan stunginn. Hann lá um tíma á gjörgæsludeild Landspítalans.