Fimm gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu nú í morgunsárið.Þrír voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og einn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Sá varð valdur að umferðaróhappi sem er í rannsókn.Átta ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur.Þá aðstoðaði lögregla þegar vísa þurfti einstaklingi úr verslun, auk þess sem tilkynning barst um unga drengi að kveikja eld. Engan eld var að sjá þegar lögregla kom á vettvang.
Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás - Vísir