Tveir voru sendir til Reykjavíkur í sjúkraflugi með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir umferðarslys á Suðurlandi í morgun.
Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning um bílveltu við Fagurhólsmýri í Öræfum upp úr klukkan 10 í morgun, segir Bjarki Oddsson lögreglufulltrúi. Lögreglu- og sjúkraflutningabílar voru sendir á vettvang frá bæði Kirkjubæjarklaustri og Hornafirði. Þá var bráðaviðbragð í Öræfum líka ræst, sem byggir á samningi við björgunarsveitir.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að beiðni um þyrlu Landhelgisgæslunnar hafi borist klukkan um 20 mínútur í 11. Þyrlan hafi verið komin á vettvang um hálf 12 og sé á leið aftur til Reykjavíkur með einstaklingana tvo um borð.
Ekki liggur fyrir hver líðan þeirra er.