Nú stendur yfir leit að tveimur mönnum sem saknað er eftir flugslys sem dró hið minnsta fjóra til dauða í Króatíu fyrr í dag.
Flugvélin brotlenti í Istria-héraði í norðvesturhluta Króatíu, nálægt Adríahafsbænum Medulin. Um er að ræða litla flugvél sem skráð var í Þýskalandi sem hafði verið á flugi frá Austurríki til Medulin.
Fengu viðbragðsaðilar tilkynningu um slysið klukkan 11.19 að staðartíma og var mikill viðbúnaður hjá slökkviliði og sjúkraflutningamönnum vegna slyssins.
Eins og áður segir létust fjórir í slysinu en fjölmiðlar í Króatíu greina nú frá því að tveggja til viðbótar sé saknað og þeirra sé nú leitað.
