Tvær nauðganir, önnur þar sem barn er brotaþoli, voru tilkynntar til lögreglu á meðan fótboltamótið Gothia Cup stóð yfir í Gautaborg. Maður grunaður um annað brotið var handtekinn.
„Einn maður hefur verið handtekinn grunaður um aðra nauðgunina, en rannsókn stendur yfir,“ er haft eftir Tamara Fuentes, upplýsingafulltrúa lögreglu, í frétt SVT.
Hitt málið snýr að nauðgun á barni og broti gegn friðhelgi einkalífs. Enginn hefur verið handtekinn í því máli.
Í vikunni sem Gothia Cup stóð yfir bárust lögreglu einnig tilkynningar um slagsmál og líkamsárás.
Um 45.000 þátttakendur frá öllum heimshornum spiluðu á ungmennamótinu Gothia Cup í ár, þar á meðal nokkur íslensk lið.