Tugmilljóna launahækkanir forstjóranna í kauphöllinni
Laun forstjóra skráðra félaga hækka víða töluvert á milli ára, á sama tíma og tengsl þeirra við afkomu og verðmætasköpun fyrirtækjanna eru óljós. Fimm forstjórar fengu meira en hundrað milljónir greiddar. Í heild kostuðu 26 forstjórar 3,1 milljarð króna.
Laun forstjóra skráðra félaga á Íslandi hækkuðu nær undantekningarlaust á síðasta ári, óháð afkomu fyrirtækjanna eða þróun hlutabréfaverðs þeirra. Af 27 forstjórum lækkaði aðeins einn í launum, Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, og þá um einungis um 100 þúsund krónur á milli ára. Einn stóð í stað, en aðrir hækkuðu, víða um tugi prósenta.
Mestu hækkanirnar voru hjá Vilhelm Má Þorsteinssyni hjá Eimskipi, Hermanni Björnssyni hjá Sjóvá og Benedikt Gíslasyni hjá Arion banka, sem allir fengu um eða yfir 25 prósenta hækkun. Róbert Wessman hjá Alvotech hækkaði um rúm 24 prósent og Jón Þór Gunnarsson hjá Kaldalóni um tæp 23 prósent.
Hækkanir af þessari stærðargráðu vekja athygli í ljósi þess að þær virðast ekki endilega endurspegla rekstrarárangur félaganna eða þróun hlutabréfa þeirra.
Laun á uppleið en ekki gengið
Í mörgum tilvikum fóru launahækkanir saman við veika eða neikvæða þróun á markaði. Hlutabréf Alvotech féllu til að mynda um …