Donald Trump forseti Bandaríkjanna staðfesti í dag að hann hefði gagnrýnt Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, harðlega í símtali þeirra á mánudag. Fjölmiðillinn Axios greinir frá.
Miranda Devina, umsjónarmaður hlaðvarps New York Post, spurði Trump hvort hann hefði sagt Netanyahu gjörsamlega brjálaðan (e. fucking crazy). Trump á einnig að hafa sagt Netanjahú að hann væri í fangelsi en sín nyti ekki við. Þessu svaraði Trump játandi. Hann útskýrði að hann hafi verið órólegur vegna árása Ísraelshers á Líbanon og hvatt Netanjahú til að hætta þeim. Trump sagði einnig í hlaðvarpinu að hann kynni mjög vel við Netanjahú og að þeir hefðu unnið vel saman.
Ísraelar hafa gert harðar árásir á Líbanon síðustu mánuði og drepið yfir 3400 manns. Um ein milljón manna er á vergangi í landinu vegna árásanna. Bandaríkin og Íran hafa átt í viðræðum um varanlegt vopnahlé sín á milli. Íranar hafa sett það skilyrði fyrir samkomulagi að Ísraelar hætti árásum á Líbanon. Stjórnvöld í Íran hótuðu fyrir nokkrum dögum að segja sig frá viðræðunum vegna árása Ísraela á Líbanon.
Axios hefur eftir bandarískum embættismönnum að Trump hafi farið fram á að Netanjahú hætti við að sprengja Beirút og varað hann við því að með áframhaldandi árásum einangraði Ísrael sig enn frekar á alþjóðasviðinu. Þá kemur fram í umfjöllun fjölmiðilsins að Netanjahú hafi hætt við árásir á Beirút, höfuðborg Líbanons, eftir samtalið við Trump.