Donald Trump forseti Bandaríkjanna segist tilneyddur til að leggja 100% toll á vín frá Frakklandi ef sérstökum skatti á stafræna þjónustu verði ekki aflétt.
Skattinum var komið á í Frakklandi árið 2019. Hann felur í sér 3% skatt á tekjur sem tæknirisarnir afla innan Frakklands. Hann nær til fyrirtækja á borð við Facebook, Amazon, Apple og Google.
Trump sagði í viðtali við New York Post að hann hefði beðið Emmanuel Macron forseta Bandaríkjanna að skattleggja ekki bandarísk fyrirtæki. „Ef [Frakkar] gera það, á ég ekki um annað að velja en setja 100% toll á öll kampavín og allt vín sem kemur frá Frakklandi,“ sagði hann og bætti svo við um Macron: „Það eina sem hann þarf að gera er að hætta við þennan söluskatt, þá losnar hann við þessa pressu.“
„Tollar gagnast engum“
Trump og Macron eiga fund í Frakklandi í dag í aðdraganda leiðtogafundar G7-ríkjanna. „Samtal okkar verður með virðingu en jafnframt festu,“ sagði Macron. „Tollar gagnast engum, sérstaklega ekki tollar milli landa innan G7-ríkjanna.“
Gabriel Picard, formaður félags vínútflytjenda í Frakklandi, segir að koma verði á uppbyggilegu viðskiptasambandi milli Bandaríkjanna og Frakklands til hagsbóta fyrir báða. „Þessi nýja hætta er slæm fyrir greinina okkar sem treystir svo mjög á útflutning,“ segir hann.
Tollarnir á vín frá Frakklandi voru hækkaðir úr 10% í 15% í fyrra þegar Trump kynnti víðtækar tollahækkanir. Áfengisútflutningur Frakka til Bandaríkjanna dróst saman um 21% í fyrra. Bandaríkin eru eftir sem áður stærsti útflutningsmarkaðurinn fyrir frönsk vín. 18% útflutningsins undanfarið ár hefur farið til Bandaríkjanna.