Tony Iommi, gítarleikari bresku sveitarinnar Black Sabbath og títt nefndur guðfaðir þungarokksins, greindist með krabbamein árið 2012. Hann segist hafa gott læknateymi og meinið sé í rénun.Eins og segir í frétt miðilsins Blabbermouth þá greindist Iommi, sem er nú 78 ára, með eitlakrabbamein árið 2012. Nú fimmtán árum seinna er hann enn að berjast við það en tekist hefur að halda því niðri.
Tony Iommi opnar sig um krabbamein sem hann hefur barist við síðan 2012