Rúta frá Póllandi keyrði út af þjóðvegi og hafnaði ofan í skurði í Ungverjalandi í nótt. Tólf eru látnir og fleiri tugir slasaðir.
Rútan var á leið frá Serbíu til Póllands með pólska ferðamenn þegar hún hafnaði utan vegar. Slysið varð um 140 kílómetra austan við Búdapest, höfuðborg Ungverjalands.
Fimmtíu og sjö voru um borð auk tveggja bílstjóra. Tólf eru látnir og minnst tíu eru alvarlega slasaðir. Minnst fimm eru í lífshættu. Þrjátíu og sjö farþegar eru með minniháttar áverka.
Gabor Posfai, innanríkisráðherra Ungverjalands, segir að bílstjórinn sé í haldi. Talið er að hann hafi sofnað undir stýri. Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, ætlar að senda flugvél til að sækja þá farþega sem eru ferðafærir.
Tveir kranar voru notaðir til að lyfta rútunni úr skurðinum. Þjóðveginum sem slysið varð á var lokað í marga klukkutíma. Þetta er alvarlegasta umferðarslys sem hefur orðið í Ungverjalandi frá árinu 2003.