Tilraunaflug Starship-risaeldflaugar geimferðafyrirtækisins Space X í gærkvöld heppnaðist vel.
Flaugin tók á loft frá Texas skömmu fyrir klukkan 23 að íslenskum tíma. Hún lenti í Indlandshafi rúmlega klukkustund síðar.
„Starship er ósködduð, hún flýtur á hafinu og sendir mæligögn,“ sagði Elon Musk, stofnandi og forstjóri SpaceX, skömmu eftir að flaugin lenti.
„Þetta er í fyrsta sinn sem Starship-eldflaug lendir á hafinu heil á húfi,“ sagði Dan Huot, talsmaður fyrirtækisins.
Þetta er þriðja gerð eldflaugarinnar og aðalmarkmið eldflaugaskotsins var að kanna hvernig breyting á hönnun flaugarinnar myndi reynast.