Tilnefningar til ljóðaverðlaunanna Maístjörnunnar 2026 voru tilkynntar í Gunnarshúsi í dag. Gjaldgengar til verðlaunanna voru allar þær 70 íslensku ljóðabækur sem komu út og var skilað til Landsbókasafnsins árið 2025. Rithöfundasambandið og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn standa að þeim.
Verðlaunin verða veitt við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni í tíunda skiptið 20. maí.
Tilnefndar bækur eru:
- Fyrir vísindin eftir Önnu Rós Árnadóttur
- Fimm ljóð eftir Eirík Örn Norðdahl
- Þyngsta frumefnið eftir Jón Kalman Stefánsson
- Mara kemur í heimsókn eftir Natöshu S.
- Postulín eftir Sunnu Dís Másdóttur
- Félagsland eftir Völu Hauks
Maístjarnan eru einu verðlaunin sem veitt eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók á Íslandi og þeim er ætlað að vekja sérstaka athygli á blómlegri ljóðabókaútgáfu hér á landi.