TikTok tískunnar: Hratt, ódýrt og ávanabindandi sölukerfi
„Ég vil ekki að þeir kæri mig ef þeir fá cancer í framtíðinni og láti eins og það sé mér að kenna,“ segir íslensk kona um leið og hún sýnir vörurnar sem hún keypti á Shein. Kínverska ofurhraðtískuhúsið Shein hefur tekist að byggja upp sterk tengsl við notendur TikTok, sem geta styrkt félagslega stöðu sína með því að kynna vörur fyrirtækisins. Á sama tíma er fyrirtækið sakað um ávanabindnadi hönnun og leikjafræði sem ýtir undir hvatvísi í kaupum.
Back to school Shein haul,“ segir íslensk stúlka á TikTok og dregur sautján nýjar flíkur upp úr pokanum. Shein er svokallað ofurhraðtískufyrirtæki sem byggir veldi sitt á hræódýrum tískuvörum.
Stelpur: Opnum pakkana
Þegar netnotkun jókst í heimsfaraldrinum sá kínverska netverslunin Shein sóknarfæri. Fyrirtækið lagði áherslu á samstarf við smærri áhrifavalda og almenna notendur samfélagsmiðla sem kynntu vörur gegn fríum vörum eða greiðslu. Aðferðin virkaði. Shein byggði hratt upp stóran og tryggan viðskiptahóp í Bandaríkjunum og Evrópa fylgdi í kjölfarið.
Velgengni Shein helst í hendur við vinsældir TikTok á meðal ungs fólks, þar sem svokölluð „haul“ myndbönd eru á meðal þess efnis sem fær mest áhorf. Samkvæmt HastagRadar hafa 5,4 milljónir myndbanda birst á TikTok undir merkjum #haul og fengið yfir 59,4 milljarða áhorfa. Fleiri myllumerki eru í notkun fyrir sambærileg myndbönd, sem snúast um að notendur sýni fylgjendum sínum hvað þeir hafa verið að kaupa.
Shein trónir á toppnum yfir …