Við ræðum við íbúa í úkraínsku höfuðborginni sem segir litlar vonir bundnar við það að fundir við Rússlandsforseta og Úkraínuforseta komi á frið. Viðvörunarbjöllur og hávaði einkenni lífið í borginni frá morgni til kvölds.
Við heyrum einnig frá Loga Einarssyni, menningar- nýsköpunar- og háskólaráðherra, sem fór yfir vendingar á fjölmiðlamarkaði í Sprengisandi í morgun. Hann segir brotthvarf kvöldfrétta Stöðvar 2 hluta af sorglegri þróun.
Þjóðverjar ganga til kosninga í Saxland-Anholt sambandsríkinu í dag en kannanir benda til stórsigur AdF-flokksins.
Og í sportinu förum við yfir það helsta úr íslenska boltanum og kynnum okkur hvað er fram undan í dag en um er að ræða sneisafulla dagskrá.