Þetta staðfestir Einar Valsson, hjá Landhelgisgæslunni, í samtali við fréttastofu. Björgunarsveitir á svæðinu hafa einnig verið kallaðar út að sögn Margrétar Gunnarsdóttur, staðgengils upplýsingafulltrúa Landsbjargar.
Hún segir að ökumaður mótorhjólsins hafi ekið fram af fjögurra metra hengju nærri skálanum Fosshóli í Þingeyjarsveit.
Ökumaðurinn er ekki talinn alvarlega slasaður en meðlimir Hjálparsveitar skáta í Reykjadal og björgunarsveitarinnar Þingeyjar voru kallaðir út klukkan 12:01. Þau vinna að því að komast að ökumanninum með börur meðferðis og búa hann undir flutning með þyrlunni.
Áætlað er að þyrlan verði komin á vettvang um korter í tvö. Lögreglan á Norðurlandi eystra óskaði eftir aðstoð þyrlusveitarinnar rétt fyrir klukkan hálf eitt.
Fréttin hefur verið uppfærð.