Þyrla gæslunnar flutti fjóra til Reykjavíkur eftir alvarlegt slys á Hringveginum

Sex manns voru fluttir á sjúkrahús, þar af tveir alvarlega slasaðir, eftir harðan þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi, austan Sólheimajökulsvegar, á sjöunda tímanum í kvöld.
Mikill viðbúnaður var á vettvangi og var Hringveginum lokað í nokkrar klukkustundir vegna björgunarstarfs og rannsóknar.
Íris Edda Heimisdóttir, aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi, staðfesti atvikið í samtali við RÚV. Viðbragðsaðilar voru fljótir á vettvang, en auk lögreglu voru þrír sjúkrabílar, dælubíll og þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar.
Samkvæmt upplýsingum frá sjónarvotti á staðnum gekk björgunarstarf erfiðlega og beita þurfti klippum til þess að ná einum hinna slösuðu út úr flraki bifreiðarinnar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti fjóra einstaklinga til aðhlynningar á Landspítalann í Reykjavík, þar á meðal þá tvo sem eru alvarlega slasaðir. Hinir tveir sem slösuðust voru fluttir með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi.
Rannsóknardeild lögreglunnar mætti á vettvang skömmu eftir slysið til að rannsaka tildrög þess. Vegna þessa var Hringveginum lokað í báðar áttir á meðan vinnu á vettvangi stóð, sem skapaði nokkrar tafir á umferð. Búið var að opna veginn að nýju um miðnæturbil þegar vettvangsferð lauk.