Lítill þvottabjörn með óvenju kringlóttan líkama og stuttan háls hefur slegið í gegn á netinu eftir að íbúi í Seattle náði myndskeiði af honum. Myndbönd af dýrinu, sem hlotið hefur gælunafnið Jimothy, hafa fengið tugi milljóna áhorfa á Instagram og TikTok.
Kiana Hall, íbúi í Seattle, kom auga á dýrið þegar hún var í kvöldgöngu með maka sínum. Hún hélt fyrst að hún hefði séð kött undir kyrrstæðum bíl og tók upp símann til að mynda hann. Þá skreið lítið grátt dýr fram úr skugganum.
„Ég varð mjög ringluð yfir því sem ég sá,“ sagði Hall í samtali við The Seattle Times. „Ég hef einfaldlega aldrei séð annað eins dýr.“
Fannst hann líta út eins og „Jimothy“
Gráa dýrið reyndist vera þvottabjörn, þó með óvenju kringlóttan líkama og stuttan háls. Í myndbandinu sést hann hlaupa yfir grasflöt og upp tröppur.
Hall birti myndskeiðið á Instagram og gaf þvottabirninum gælunafnið „Jimothy“. Aðspurð sagðist henni einfaldlega hafa fundist hann líta út eins og „Jimothy“.
Myndbandið fór hratt í dreifingu og hefur nú verið spilað yfir sjö milljón sinnum á Instagram. Tveimur dögum síðar birti Hall það einnig á TikTok, þar sem það hefur verið spilað yfir 17 milljón sinnum.
Í kjölfar vinsældanna birti annar íbúi í Ballard upptöku úr öryggismyndavél sem sýndi líklega sama þvottabjörn um mánuði áður. Það bendir til þess að Jimothy hafi verið á ferli í hverfinu nokkru áður en hann varð heimsþekktur á samfélagsmiðlum.
Við góða heilsu þrátt fyrir óvenjulegt útlit
Sérfræðingar í dýralífi telja að Jimothy virðist við góða heilsu þrátt fyrir óvenjulegt útlit sitt. Að sögn Marcie Logsdon, dósents við dýralæknadeild Washington State University, gæti stutti háls þvottabjörnsins stafað af meðfæddum hryggjarliðagalla sem líkist svokölluðu short spine syndrome, eða stuttu hryggjarliðaheilkenni. Heilkennið hefur einkum greinst hjá hundum en mun sjaldnar hjá öðrum dýrum.
Logsdon segir þó ekki unnt að staðfesta slíka greiningu út frá myndbandinu einu saman, enda hafi afar fá tilfelli verið skráð hjá villtum dýrum.
Hún telur engu að síður að Jimothy sé ungur þvottabjörn, líklega fæddur á þessu ári, og bendir á að hreyfingar hans sýni að hann sé afar fimur.
Hissa og hrærð yfir þrautseigju dýrsins
„Sú staðreynd að hann hefur náð þessum aldri segir mér að hann bjargi sér vel og sé að aðlagast,“ sagði Logdson. „Ég var hissa – og satt að segja dálítið hrærð – yfir því hversu þrautseigur hann er.“
Kiana Hall, sem tók myndbandið af þvottabirninum, segist ánægð með að litli þvottabjörninn hafi glatt svo marga.
„Mér finnst tímarnir hafa verið erfiðir fyrir alla, svo ég er virkilega glöð að hafa birt eitthvað á netinu sem nær til svo margra og gleður þá svona mikið,“ sagði hún. „Ég vona bara að Jimothy haldi áfram að lifa lífinu frjáls og að hann haldist hraustur.“